154. löggjafarþing — 100. fundur,  22. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[17:11]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf):

Forseti. Ég þakka ráðherra fyrir svarið. Ef ég heyrði rétt skildist mér að 11 milljarðar færu í Sjúkrahúsið á Akranesi en 2 milljarðar fara í SÁÁ sem rekur sjúkrahús sem er ekki síður nauðsynlegt. Mér finnst þetta óréttlátt, þetta er svo alvarlegt mál. Ég hefði viljað að það væri opinn tékki til að vinna í þessu vandamáli, þvílíkt er það. Ég þekki það af eigin raun. Ég umgengst fólk sem hefur átt við þessi vandamál að stríða, og á við þessi vandamál að stríða, mjög reglulega og oft. Ég fer inn í fangelsin og hitti menn sem hafa lent í slíku og ég veit hvert vandamálið er. Ég segi: Það er aldrei nógu mikið sett í þetta, þetta verður aldrei leyst. Þetta er endalaust og við þurfum á forvörnum að halda og vinnu í kringum þetta.