fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Hæstv. ráðherra nefnir skaðaminnkun og ég veit til þess að það er í gangi starfshópur sem miðar að því að finna úrræði hvað það varðar. Það sem vekur hins vegar upp áhyggjur við lestur fjármálaáætlunarinnar og fylgiskjala er að skaðaminnkun og stefna í þá átt kallar á úrræði sem snúast ekki eingöngu um að koma í veg fyrir neyslu vímuefna heldur að mæta einstaklingum þar sem þeir eru staddir og tryggja fólki heilbrigðisþjónustu sem það á rétt á óháð þeirri stöðu sem það er í. Maður hefði því haldið að ef það væri hugarfarsbreyting eða viðhorfsbreyting í þessa átt þá myndi sjást meira af nýjum úrræðum og fjölbreyttari úrræðum hvað það varðar fyrir þessa einstaklinga til að tryggja fólki þessi réttindi í þessari fjármálaáætlun.
En það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um í síðara andsvari er varðandi meðferðarúrræði fyrir börn með fíknivanda og oft gjarnan fjölþættan vanda, hvað líði aðgerðum í þeirra þágu.