fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Hæstv. forseti. Ég ítreka þakkir til hv. þingmanns. Ég vil fá tækifæri til að nefna hér þó nokkuð af þeim aðgerðum sem eru þegar farnar í gang. Talandi um viðhorfsbreytingu erum við auðvitað búin að vinna að því að fjármagna neyslurými. Við erum að vinna að nýjum heildarsamningi og m.a. með áherslu á viðhaldsmeðferðir. Við erum komin í gang með hvernig þróun flýtimóttöku geti átt sér stað, við erum að dreifa nefúðanum og við erum að vinna með Lyfjastofnun að því að það geti orðið lausasölulyf. Við erum líka að vinna með RLE varðandi rannsókn og gagnaöflun og frárennslismælingar í skólpi. Við erum að vinna í niðurtröppunarverkefnum með apótekum og heilsugæslum og við erum að gera samninga við fjölmörg félagasamtök, ekki síst fyrir börn og unglinga. Það eru kannski oft svokölluð lágþröskuldaúrræði sem grípa inn í. Við erum að tala þar um Bergið headspace, (Forseti hringir.) Foreldrahús og ýmislegt þar í samvinnu við mennta- og barnamálaráðherra.