fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það eru fjögur fangelsi á Íslandi í dag. Þar af eru tvö opin, eitt öryggisfangelsi og eitt gæsluvarðhaldsfangelsi. Það er opið fangelsi fyrir karla á Kvíabryggju og sömuleiðis á Sogni. Nú standa yfir endurbætur og viðbygging á Sogni til að fjölga plássum um 14 og erum við aðallega að hugsa það fyrir konur. Við erum sömuleiðis, eins og komið hefur fram í máli mínu, að hefja uppbyggingu á nýju fangelsi á Litla-Hrauni. Nú er það svo að við þurfum að forgangsraða og við getum ekki verið með byggingu í gangi á öllum stöðum. En það er frumathugun í gangi á kerfinu í heild sinni og búið að gera lauslega kostnaðaráætlun um hvað það kosti að endurbyggja húsakostinn á Kvíabryggju. En ég vil taka undir með hv. þingmanni að þar fer fram mjög gott starf og það er nauðsynlegt að við fjölgum þeim úrræðum í fullnustukerfinu, úrræðum afplánunar, þannig að fangar geti átt þess kost að afplána dóma sína, sérstaklega í lokin, í opnu úrræði. Ég hef mikinn áhuga og hug á því að við skoðum það í víðu samhengi eða með opnum huga. Þar vil ég leggja til, sem ég hef nefnt sömuleiðis, að við endurskoðum allt fullnustukerfið, hvernig við getum bætt þetta kerfi sem mest og einmitt hugsað til annarra úrræða eins og opinnar samfélagsþjónustu og annað.