fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og sömuleiðis vil ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á málefnum fangelsa og fanga á Íslandi. Eins og ég nefndi hér fyrr í dag þá er heilmikið að gerast í fangelsiskerfinu varðandi kvenfanga. Það er rétt, sem hv. þingmaður segir, að mikill aðstöðumunur er á milli karlfanga og kvenfanga. Þegar gæsluvarðhaldsfangelsið á Hólmsheiði var tekið í notkun var kvennafangelsinu í Kópavogi lokað. Við erum þar af leiðandi ekki með kvennafangelsi á Íslandi heldur hafa þær fáu konur sem hafa þurft að afplána dóma verið vistaðar í gæsluvarðhaldsfangelsinu á Hólmsheiði sem er eitt mesta öryggisfangelsi landsins. Það þýðir að allir möguleikar þeirra, hvort sem er til vinnu eða endurhæfingar, eru með öðrum hætti en karlfanga og ég hef mikinn áhuga á að breyta því. Liður í því er viðbygging á Sogni og í það höfum við sett umtalsvert fé. Sú byggingarvinna hefst í sumar þar sem við gerum ráð fyrir að fjölga um 14 pláss í opnu úrræði á Sogni sem við hugsum fyrst og síðast fyrir kvenfanga, enda hafa þær ekki átt sömu möguleika á að afplána í opnu úrræði og karlar. Þetta skiptir mjög miklu máli og um leið og það verður gert tel ég að við getum aukið möguleika kvenna til endurhæfingar á Sogni frá því sem nú er.