fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svarið. Ég saknaði þess svolítið að heyra ekkert um fjármál fanga. En í þessari umferð ætla ég að snúa mér að allt öðru, að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, lögum um meðferð einkamála og lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., miðlun og form gagna, fjarþinghöld, birting ákæra o.fl. Um stefnubirtingar segir í greinargerð frumvarpsins:
„Í því sambandi bendir ráðuneytið á að birtingar á stefnum voru ekki til umfjöllunar við undirbúning frumvarpsins og einkaaðilar hafa enn sem komið er ekki aðgang að hinu stafræna pósthólfi.“
Þrátt fyrir þetta kom fram í fjölmiðlum á föstudaginn, eða eftir að málið var afgreitt úr nefnd, að innheimtufyrirtækið Gjaldskil væri búið að innleiða stafrænar stefnubirtingar í samvinnu við hugbúnaðarfyrirtækið Justica. Þarna fer ekki saman hljóð og mynd. Ráðuneytið segir að stafrænar stefnubirtingar séu ekki komnir til framkvæmda en í fjölmiðlum segir að þær séu að koma til framkvæmda.
Þarf ekki að bregðast við þessu með breytingu á frumvarpinu sem liggur fyrir Alþingi til að kveða á um að stefnur verði ekki taldar réttilega birtar í stafrænu pósthólf fyrr en viðtakandi hefur staðfest móttöku líkt og á að gilda um ákærur? Að minnsta kosti hlýtur að þurfa að gefa skýringar á því hvort stafrænar stefnubirtingar séu komnar til framkvæmda eða hvort von sé á öðru frumvarpi síðar þar sem tekið verði á þessu sérstaklega.