fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar seinni fyrirspurn og vil fá að koma inn á hana, en hv. þingmaður gat þess að ég hefði ekki svarað fyrri fyrirspurn varðandi fjármál fanga. Það er rétt að það setur líf fólks algerlega á hvolf, því er kippt út úr hinu daglega lífi, að þurfa að dvelja í fangelsi í lengri eða skemmri tíma. Þetta getur haft veruleg áhrif á fjárhag fólks og því skiptir máli, og ég tel að það sé líka hluti af þeirri endurhæfingu sem ég nefndi hér áðan varðandi fanga, að föngum sé jafnvel boðið upp á fjármálakennslu, fjármálaaðstoð og fjármálalæsi, að það gæti verið hluti af möguleikum og/eða jafnvel hluti af námi. Fjölbrautaskóli Suðurlands annast nám í fangelsunum og slíkt nám myndi skipta máli.