154. löggjafarþing — 100. fundur,  22. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[17:57]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Já, almannavarnir hafa staðið sig mjög vel, ég vil undirstrika að það er alveg rétt. Það er hins vegar þannig að það hefur ekki tekist að forða manntjóni, það varð eitt mannslát. Þessi fyrirspurn mín hér áðan er svo sem ekki í tengslum við það. Hún sneri að því að ferðamenn virðast algjörlega grunlausir um að enn gjósi og að eldgos gæti komið upp við Bláa lónið miðað við þau hættumerki sem fyrir liggja. Spurningin sneri að því hvort við værum að gera nóg til að upplýsa fólk um hættuna sem það er að fara út í þegar það kaupir miða í Bláa lónið. En vegna þess að hæstv. ráðherra minntist á manntjón hlýt ég að spyrja hæstv. ráðherra hvort ekki standi alveg örugglega til að setja á fót sjálfstæða rannsókn á tildrögum manntjónsins í Grindavík sem allra fyrst.