154. löggjafarþing — 100. fundur,  22. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[17:58]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurninguna. Eru almannavarnir að gera nóg varðandi ferðaþjónustuna? Ég tel svo vera. Okkar færustu sérfræðingar í náttúruvá, þau hafa verið vakin og sofin — við getum farið að telja þetta í árum — varðandi þær hamfarir sem átt hafa sér stað á Reykjanesi og þá sérstaklega nú í vetur. Sem dómsmálaráðherra vil ég gjalda varhuga við því að ferðamenn séu að fara um svæðið núna enda var hættuástand aukið á síðasta föstudag þar sem er mikið landris. Ég vil sömuleiðis fá að nefna að ég hef hug á því að gerð verði ytri rýni á almannavarnaviðbragðinu sem verið hefur í Grindavík og þeim viðbrögðum sem þar hafa átt sér stað.