fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Mig langar að nota síðara andsvar mitt til að fara aðeins nánar ofan í mál lögreglunnar. Nú er það svo að dómstólar eru undanskildir aðhaldi með þeim rökum að þar sé launakostnaður um 80% af þeim kostnaði sem þarf til að reka kerfið. Bent hefur verið á bæði þessi atriði hvað varðar lögregluna, þ.e. að lögreglan teljist til mikilvægra innviða og að lögreglan nýti stærstan hluta fjármagnsins í launakostnað líkt og dómstólar. Ég ætla því að spyrja hæstv. ráðherra hvort einhver greining hafi farið fram á því hvað það myndi kosta að hlífa lögreglu algerlega við árlegri 1% aðhaldskröfu.