154. löggjafarþing — 100. fundur,  22. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[18:21]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Það er ástæða til að fagna því sérstaklega að tækjakostur Landhelgisgæslunnar verði efldur fyrstu tvö ár áætlunarinnar um það sem nemur 700 milljónum. Það var kominn tími til. En ég ætla að nýta tækifærið í dag og taka fyrir orðalagið sem varðar framsetningu áætlunarinnar. Það hryggir mig jafn mikið að í greinargerð fjármálaáætlunar, nánar tiltekið á bls. 68–69, er fullyrt að þessar sömu fjárheimildir til Gæslunnar séu til þess fallnar að viðhalda stöðu þar sem hallar á konur, enda er mikill meiri hluti starfsfólks og helstu haghafa karlar. Mig langaði til að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra hvort hún væri efnislega sammála þessari fullyrðingu í greinargerð fjármálaáætlunar. Og ef svo er, hvernig hyggst hæstv. ráðherra stuðla að auknu kynjajafnrétti í starfsumhverfi Landhelgisgæslunnar til að vinna bug á þessari stöðu? Við vitum auðvitað að Landhelgisgæslan hefur að geyma starfsfólk sem vinnur verkefni sín af dugnaði og einurð og þar er, sökum eðli verkefnanna, stundum erfiðara að fá konur en karla til starfa. En þetta er spurning um pólitískan vilja til að leiðrétta.

Í lokin langaði mig til að spyrja um ástæður þess að hús viðbragðsaðila er ekki í fókus í þessari fjárhagsáætlun líkt og hæstv. ráðherra kom inn á. Ég veit að þetta er líka allt spurning um pólitíska forgangsröðun. En hvað verður gert til að koma til móts við þarfir þessara aðila um betri vinnuskilyrði á tímabilinu?