fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurninguna. Ég ætla að taka undir með hv. þingmanni, það er hlutverk okkar allra að tryggja að störfin í landinu henti öllum kynjum og að við leggjum öll okkar lóð á þær vogarskálar. Ég vil líka fá að árétta varðandi nýjar höfuðstöðvar viðbragðsaðila; það hefur ratað í fréttir að það húsnæði sem samhæfingarmiðstöðin er í í dag er ófullnægjandi, hugsanlega heilsuspillandi. Það er því brýnt að finna nýtt húsnæði fyrir þá starfsemi sem fyrst. Við erum að leita að nýju húsnæði í mínu ráðuneyti fyrir þessa mikilvægu starfsemi og ég vænti þess að við fáum niðurstöðu í það fyrr en síðar. Við erum að gera könnun á því hvað við þurfum stórt húsnæði og þurfum sömuleiðis að finna húsnæði sem er þá vel staðsett til þessarar mikilvægu starfsemi.