154. löggjafarþing — 100. fundur,  22. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[18:50]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég er enn að leita svara við því hvort eitthvað nýtt komi frá þessari ríkisstjórn í útlendingamálum eftir að hún var kynnt fyrst til sögunnar og lýsti því yfir að útlendingamál yrðu forgangsatriði hjá stjórninni. Það er ekki að heyra á hæstv. ráðherra að það verði neitt til viðbótar við það sem þegar hafði verið kynnt áður en ríkisstjórnin varð til. Sumt af því er reyndar í óvissu eins og til að mynda mál hæstv. ráðherra sem liggur fyrir þinginu og ég hef tekið undir hér í dag og áður, en samstarfsflokkur í ríkisstjórninni, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, hefur gert fyrirvara við það mál. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Telur hæstv. ráðherra að þetta verði klárað á þessu þingi, óbreytt frá því sem nú er? Eða mun VG geta stöðvað málið eða tafið það eða breytt því í grundvallaratriðum eins og gerðist ítrekað með fyrra útlendingamál?

Í öðru lagi hefur hæstv. ráðherra nefnt að til standi að gera átak eða gera meira í því að flytja fólk úr landi sem á ekki rétt á landvist hér. Þá hlýtur að þurfa að huga að landamærunum í leiðinni því að annars getum við horft upp á það sem við höfum séð gerast, að fólk er flutt úr landi í lögreglufylgd og svo er sama fólk komið aftur inn í landið, jafnvel áður en lögreglan kemur til baka. Hvað verður gert í landamæravörslu til að koma í veg fyrir slíkt? Loks verð ég eiginlega að spyrja, af því að hæstv. ráðherra nefndi það hér áðan, að það væri markmið að öll kyn, eins og hæstv. ráðherra orðaði það, yrðu í vinnu hjá Landhelgisgæslunni: Hver eru þessi kyn? Hver eru öll þessi kyn? Það hlýtur að liggja fyrir ef það á að vera hægt að skoða hvort markmiðið náist. Ég bið því hæstv. dómsmálaráðherra að fara yfir það með þinginu hvert þetta markmið er, hver öll þessi kyni eru.