fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Frú forseti. Loksins lærðum við eitthvað, það stendur til að kynna eitthvað nýtt varðandi landamærin í sumar, (Dsmrh.: Í júní.) — í júní ítrekar hæstv. ráðherra hér og við vonum að það tefjist ekki. Að öðru leyti voru svör hæstv. ráðherra heldur innihaldsrýr. Eitt var þó furðulegt. Þegar ég spyr hæstv. ráðherra hvað hann sé að meina, hver stefna hans sé, hvað sé lagt til grundvallar því sem hæstv. ráðherra var að segja hér rétt áðan, þá svarar ráðherra því að hann ætli ekki að segja mér það, ég þurfi bara að spyrja einhverja aðra um hvað ráðherrann hafi verið að fara. Þetta var mjög undarlegt svar frá ráðherra, frú forseti.
Frú forseti. Ég geri ekki ráð fyrir að hæstv. ráðherra muni svara þessu í seinni tilraun af því að ég tel að hæstv. ráðherra viti ekki alveg hvað hann hafi verið að fara þarna áðan og þess vegna viljað komast hjá því að svara því. Fyrir vikið ætla ég einfaldlega að ítreka spurninguna um það sem kom fram og var rætt töluvert hér áðan um öryggisráðstafanir: Hvað verður gert til að taka á þeirri vaxandi ógn sem hér er við öryggi landsmanna, m.a. vegna skipulagðrar glæpastarfsemi?