154. löggjafarþing — 100. fundur,  22. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[18:56]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurninguna. Ég vil ítreka að ég er í stjórnmálaflokki þar sem við skiptum fólki ekki niður og við tölum um öll kyn. Ég ítrekaði það hér í dag að ég vil sjá fjölbreyttan starfsmannahóp hjá Landhelgisgæslunni og lögreglunni, af öllum kynjum. Ég ætla bara að ítreka það enn og aftur. Öryggisráðstafanir vegna skipulagðrar brotastarfsemi, þar er ríkislögreglustjóri sem og öll lögregluembættin í landinu að vinna umfangsmikið starf. Það kom fram fyrr í dag að umtalsvert fé hefur verið sett í að uppræta skipulagða brotastarfsemi, og það skiptir mjög miklu máli. Þetta er vinna sem tekur oft langan tíma og við þurfum að veita lögreglunni heimildir til þess að geta rannsakað (Forseti hringir.) skipulagða brotastarfsemi. Einn liður í því eru breytingar á lögreglulögum sem eru nú í meðförum þingsins. Ég tel afar brýnt að þær verði samþykktar til að lögreglan fái betri tæki til að vinna gegn skipulagðri brotastarfsemi.