154. löggjafarþing — 100. fundur,  22. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[19:03]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég býð hæstv. ráðherra velkominn aftur í sitt gamla ráðuneyti og vonast til jafn góðra samskipta og þegar hún sat þar síðast. Hér talar ráðherra réttilega um að framlög til utanríkismála og alþjóðlegrar þróunarsamvinnu séu að aukast og nú um rúma 10 milljarða á tímabili fjármálaáætlunar. Það er fagnaðarefni að við séum að stíga næstu skref varðandi þróunarsamvinnu. Þessi hækkun skýrist m.a. af auknum framlögum til varnarmála sem hafa fengið meira vægi, rétt eins og hjá öðrum bandalagsþjóðum, fyrst og fremst vegna stríðsins í Úkraínu en líka vegna hækkunar á framlögum í uppbyggingarsjóð EES. Það er hins vegar ekki gert ráð fyrir nema 700 millj. kr. hækkun til Landhelgisgæslunnar fyrstu tvö ár áætlunarinnar sem ætlað er til að mæta reglulegri endurnýjunarþörf Gæslunnar.

Nú átta ég mig á að Landhelgisgæslan er ekki á hendi hæstv. utanríkisráðherra en í ljósi veigamikils hlutverks Landhelgisgæslunnar í varnarmálum hér langar mig að spyrja hvort utanríkisráðherra telji ekki nauðsynlegt að auka fjármagn til Gæslunnar til að sinna þessum verkefnum og hvort einhver samtöl hafi átt sér stað milli utanríkis- og dómsmálaráðuneytisins um rekstur og getu Gæslunnar. Ég spyr einnig hvort ráðherra teldi ekki ástæðu til þess að við færum að ræða nýja flokkun á framlögum okkar til varnar- og öryggismála þannig að það verði gagnsærra. Nú er þetta dálítið út og suður en ég held að við þurfum að vera með skýr skilaboð um það að þetta er málaflokkur sem skiptir okkur miklu máli.