154. löggjafarþing — 100. fundur,  22. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[19:05]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar og fyrir að bjóða mig velkomna til baka. Varðandi varnarmálin almennt þá skiptir máli að við séum að auka framlög til þeirra nú, og ekki bara til að auka þau heldur erum við með skilgreind verkefni sem fara þarf í. Við erum auðvitað enn í þeirri stöðu að það eru miklu meiri umsvif annars staðar frá á Íslandi en við sjálf erum með hér. En því fylgir auðvitað að lágmarki, fyrir þjóð sem vill taka sig alvarlega, að hún sé með almennilega yfirsýn yfir það sem verið er að gera, t.d. á Keflavíkursvæðinu. Þar gegnir Landhelgisgæslan auðvitað lykilhlutverki í gegnum þann samning sem ráðuneytið er með við Gæsluna þar sem þau sinna gríðarlega mikilvægu hlutverki þar og svo sem í öðrum verkefnum líka og eru okkar mikilvægasti hlekkur innan lands. Það er því jákvætt að frekari fjármunir séu að fara í Landhelgisgæsluna en það þarf líka að fara í vinnu við að endurskoða og skrifa út hvað við teljum nauðsynlegt að gera gagnvart Gæslunni. Hvert er hennar skilgreinda hlutverk? Á það að breytast? Á það að aukast í umsvifum? Eru tækifæri til einhverrar uppstokkunar eða breytinga, hvort sem það er í tækjabúnaði eða í rekstri almennt. Landhelgisgæslan er og verður okkur gríðarlega mikilvæg.

Síðan er ég sammála hv. þingmanni í því að það skiptir máli að við séum með það algjörlega skýrt hvernig við skilgreinum okkar framlag. Það skiptir líka máli að við aukum einfaldlega pólitíska umræðu um það hvert okkar framlag er. Við höfum líka verið að taka ákvarðanir í varnarmálum — og þá er oft fyrsta spurning: Eykur þetta öryggi okkar hér á Íslandi? Okkar hlutverk er ekki bara að gera það heldur eru ákvarðanir og framlög og verkefni sem eru okkar framlag til Atlantshafsbandalagsins til að auka öryggi svæðisins. Það er alveg spurning hvort við getum skilgreint það enn frekar og tekið það saman.