154. löggjafarþing — 100. fundur,  22. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[19:07]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég þakka svörin og í þessu er ég um margt sammála ráðherra. Mig langaði að fara aðeins í annað. Það er gert ráð fyrir að framlög til utanríkisþjónustu og stjórnsýslu utanríkismála lækki um 694 milljónir á tímabilinu. Þar munar helst um almennt rekstraraðhald sem nemur 613 milljörðum. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort þetta muni hafa áhrif og hvort það sé reyndar ekki frekar tryggt að þetta muni ekki koma niður á hagsmunagæslu okkar í Brussel. Og eins bara hvaða leiðir ráðherra sér til þess einmitt að efla þá hagsmunagæslu.

Við erum auðvitað nýbúin að standa í stórræðum í stóru hagsmunamáli er varðar flugið og innan skamms munum við þurfa að taka svipaða slagi varðandi fráveitu og önnur stór mál þar sem sérstaða Íslands er alveg klár en þarf svo sannarlega að halda vel á spöðunum.