154. löggjafarþing — 100. fundur,  22. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[19:08]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Jú, það er tryggt og þarf að vera tryggt að þessi aðhaldskrafa muni ekki bitna á hagsmunagæslu okkar í Brussel. Rétt eins og hv. þingmaður nefndi — hann nefndi það stóra mál sem kom upp, og þau eru fleiri — þá helst eðli máls samkvæmt í hendur hversu öfluga hagsmunagæslu við erum með fyrir okkur sjálf og það hvað við setjum mikið í að tryggja þá hagsmunagæslu. Það er enginn annar sem tryggir hagsmunagæslu Íslands en við. Þegar upp koma mál og þegar umræða er um að við þurfum að gera betur þurfum við að tryggja að það sé gert. Hins vegar erum við vel mönnuð. Fyrir nokkrum árum jukum við í starfsmannafjölda en ég tel tækifæri til úrbóta þannig að við stillum þessum hópi meira upp sem liði. Þetta er of bundið, þetta eru of mikil síló. Þetta er of bundið við það að fólk fer út sem fulltrúi ákveðins ráðuneytis þegar málin eru bara oft og tíðum þannig að mikill þungi er í ákveðnum ráðuneytum og málaflokkum og miklu minni í öðrum. Ef við ætlum að besta þá hagsmunagæslu og þann hóp sem við erum með þarna tel ég tækifæri í því að við náum (Forseti hringir.) að stuðla að því að hann vinni sem eitt teymi (Forseti hringir.) þar sem fólk getur hlaupið á milli (Forseti hringir.) þannig að við getum gripið boltana þar sem þeir eru flestir á lofti, því að það er mismunandi eftir hverjum tíma og eftir málaflokkum.

(Forseti (ÁsF): Forseti minnir hv. þingmenn á ræðutíma.)