154. löggjafarþing — 100. fundur,  22. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[19:22]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Það er borið uppi af öflugu fólki að halda uppi hagsmunagæslu og verkefnum okkar í utanríkisþjónustunni. Það verður áskorun að mæta þessari aðhaldskröfu. Þegar við horfum á ýmis lönd í kringum okkur eru þau almennt ekki bara að leggja aukna áherslu á varnarútgjöld og varnarmál heldur líka frekari áherslu á utanríkisþjónustu; sérstaklega þegar við horfum á þá tíma sem við lifum nú.

En ég verð að fá að nýta tækifærið og nefna að við erum með kjörræðismenn út um allan heim sem eru, ef ég man rétt, í heildina fleiri en allir starfsmenn utanríkisþjónustunnar. Þeir vinna sjálfboðastarf, mjög óeigingjarnt starf sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir okkur (Forseti hringir.) og sérstaklega fyrir okkur sem erum með smáa utanríkisþjónustu. En við verðum að vera skapandi í þessu, hafa kjark til að leggja niður ákveðin verkefni og vera óhrædd við að vinna hlutina öðruvísi í krafti þess að við erum smá.