fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Afstaða Íslands í afvopnunarmálum er skýr og hún byggir á ákvæðum þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland sem segir skýrt að Ísland beiti sér fyrir afvopnun á alþjóðavettvangi. Á þeim grunni vinnum við bæði á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, Atlantshafsbandalagsins og innan þeirra samninga sem Ísland er aðili að, líkt og NPT-samninganna um bann við útbreiðslu kjarnavopna. Í þessum efnum stillum við gjarnan saman strengi með öðrum Norðurlöndum og erum líka meðal þeirra ríkja innan Atlantshafsbandalagsins sem tala þessari röddu og við munum áfram gera það.
Því miður tókst ekki á liðnu ári að rjúfa þá stöðnun sem einkennt hefur viðræður um afvopnun og framkvæmd gildandi afvopnunarsamninga undanfarin ár. Það er alveg óhætt að segja að innrás Rússlands í Úkraínu árið 2022 hafi meira og minna sett öll þessi afvopnunarmál í hnút. Á síðastliðnu ári drógu Rússar t.d. til baka fullgildingu sína á samningnum um bann við prófun á kjarnavopnum. Auðvitað er það forgangsmál fyrir alþjóðaöryggi að styrkja framkvæmd samningsins um bann við útbreiðslu kjarnavopna og friðsamlega nýtingu kjarnorku. Undirbúningur er hafinn og hófst á liðnu ári fyrir næstu endurskoðunarráðstefnu samningsins sem er fyrirhuguð á næsta ári. Enn sem komið er eru ekki teikn á lofti um að sú endurskoðun verði mjög árangursrík. Það er ömurlegt en það er þó þannig að innrás Rússa í Úkraínu hefur einfaldlega aukið hættu á því að gjöreyðingarvopnum, t.d. kjarnavopnum eða efnavopnum, verði beitt í hernaði eða að kjarnorkuslys verði, sem er auðvitað sömuleiðis töluvert í umræðu og hætta á. Það er mikilvægt að aðildarþjóðir, bæði Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar og efnavopnasamningsins, virði þessar skuldbindingar. (Forseti hringir.) Okkar afstaða er skýr og við höfum komið henni á framfæri þegar færi gefst.