fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurningarnar og óskir um velgengni. Það er alveg rétt að það er skörun á milli verkefna dómsmálaráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins og samtalið og samvinnan er góð. Við í utanríkisráðuneytinu vinnum til að mynda mjög þétt með embætti ríkislögreglustjóra og þar er samvinnan mikil; sömuleiðis auðvitað með stórum samningi við Landhelgisgæsluna sem gegnir lykilhlutverki í þessum verkefnum. Í þjóðaröryggisráði eigum við sömuleiðis báðar sæti og þar eru ýmis verkefni þar sem er skörun. En ef ég skildi spurningu hv. þingmanns rétt þá skiptir máli fyrir þjóðaröryggishattinn og öryggis- og varnarhattinn, sem utanríkisráðherra er með hverju sinni, að löggæslan sé burðug, að hún hafi getu til að sinna sinni vinnu, að hún hafi burði og getu og heimildir til að vera í samstarfi við nágrannaþjóðir sem er okkur gríðarlega mikilvægt og við ættum að gera meira af; að við höfum heimildir, getu og burði til að taka við upplýsingum sem skipta máli fyrir okkur að geta tekið á móti til þess að átta okkur á því hvað mögulega getur gerst eða hvaða áskoranir og ógnir blasa við okkur hér.
Almennt vil ég bara segja að ég tel að við skuldum fólki að setja öryggis- og varnarmál frekar á dagskrá á Íslandi vegna þess sem er að gerast mjög stutt frá okkur, hlutir sem við erum ekki ónæm fyrir. Þegar við horfum á það hversu hratt umræðan þróast í öllum löndum í kringum okkur og horfum á það hver hún er hér þá er það í mínum huga orðinn ábyrgðarhluti að við setjum það á dagskrá. Við erum ekki ónæm fyrir því sem er að gerast. Við höfum hlutverki að gegna (Forseti hringir.) og við eigum að meina það að vera verðugir bandamenn og það þýðir bæði í pólitísku samhengi en líka í ákvörðunum og aðgerðum og með því að auka útgjöld til þessara málaflokka.