fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir svarið. Það er vissulega mikilvægt að við stöndum okkur í varnarmálum. Væntanlega eru útgjöld þá, eins og mátti lesa úr orðum hæstv. utanríkisráðherra, til hins borgaralega hluta varnarmála, það sem við getum lagt til málanna. Ég segi alveg eins og er að það er gríðarlega mikilvægt að auka hlutdeild okkar í alþjóðlegum viðskiptum og að Ísland nýti sína hlutfallslegu yfirburði þar sem fisk- og matvælaframleiðandi og líka varðandi orkumálin og fleiri mál.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Vissulega verðum við að stuðla að mannréttindum og lýðræði í heiminum og gæta hagsmuna okkar. En út úr alþjóðasamstarfi, og mér finnst það svolítið vanta, má líka fá gríðarlega þekkingu. Ég get bara sagt mína reynslu varðandi fjármálaeftirlit og efnahagsbrot; þá er t.d. gríðarleg þekking í peningaþvætti og öðru slíku. Mig langar að nefna í lokin: Er Ísland ekki að taka þátt af öflugum krafti í alþjóðastarfi undirstofnana Sameinuðu þjóðanna? Ég nefni Alþjóðaveðurfræðistofnunina, Alþjóðahugverkastofnunina, Flugmálastofnunina og Ferðamálastofnunina. (Forseti hringir.) Er þar ekki akur sem Ísland þyrfti að sinna miklu betur og leggja meiri áherslu á (Forseti hringir.) og líka Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna t.d., upp á þekkingu og upp á að fá nýjustu strauma inn til landsins?