154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

lagareldi.

930. mál
[16:42]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. matvælaráðherra fyrir að flytja okkur þetta veigamikla frumvarp og mæla fyrir því hér í dag. Það er alveg ljóst að verkefni atvinnuveganefndar er töluvert sem fram undan er. Það er alveg ljóst. Það er sömuleiðis spurning með þann tíma sem eftir er af þessu þingi en ég get fullvissað hæstv. matvælaráðherra um það að ég held að það sé hugur sem fylgir máli innan atvinnuveganefndar um að klára þetta mikilvæga mál. Vissulega er eftirsjá að hæstv. matvælaráðherra úr atvinnuveganefnd en við fengum nú annan ágætan í staðinn úr hennar flokki og örvæntum ekki, en vissulega er það alltaf þannig að þegar menn hafa reynslu af því að starfa saman í gegnum tíðina þá er alltaf eitthvað svona sem situr eftir þegar viðkomandi aðili hverfur á braut. En hann er svo sem ekki farinn langt, hv. þingmaður sem nú er hæstv. ráðherra, hún er þá komin hinum megin við borðið.

Málið, sem er mjög mikilvægt, er komið hér til þingsins og það er þingsins að taka utan um þær athugasemdir og hlusta á þær raddir sem hafa t.d. komið fram í dag og velta því fyrir sér hvað er hægt að gera til að reyna að skapa sátt um þetta mikilvæga mál, þessa mikilvægu atvinnugrein sem er í vexti og mun vaxa, hvort sem það er í sjókvíaeldi eða þá í landeldi. Sömuleiðis er getið um hafeldi í þessu frumvarpi, held ég, en það er styttra á veg komið. Við sjáum það fyrir okkur á næstu árum að ef vel er á haldið í þessu verkefni þá munum við auka framleiðslu bæði í sjókvíaeldi og á landi allverulega og þetta eru tekjur sem mikið munar um. Ég vil fagna þeirri ræðu sem hv. þm. Teitur Björn Einarsson flutti hér áðan þar sem hann fór mjög ítarlega og vel yfir þau byggðasjónarmið sem fylgja óhjákvæmilega þessu máli. Við megum ekki horfa fram hjá því að þarna eru margir samhangandi þættir sem koma saman. Það eru fyrirtækin sem stunda þessa vinnslu, það eru byggðarlögin sem byggja afkomu sína á þessu eldi og síðan er gríðarlega mikilvægur og stór þáttur sem snýr að náttúru landsins sem við þurfum að horfa vel til. Það er nú einu sinni þannig að þegar við erum að stunda einhverja ákveðna framleiðslu þá skiljum við alltaf eftir okkur einhver fótspor. Það verður aldrei hjá því komist, sama hvernig við göngum um landið. Hver og einn þarf að líta í eigin barm því það er enginn undanskilinn hvað það varðar.

Þegar við tökum utan um svona framleiðslu sem hér um ræðir, þ.e. lagareldi, þá verðum við að gera þá kröfu til þeirra sem hafa þau leyfi sem um er rætt að allt verði gert til þess að dýravelferð verði í fyrirrúmi. Ég verð bara að segja að það sem af er þá hafa verið leiðinlegar fréttir, því miður, það hefur bara verið þannig, við verðum að horfast í augu við það. Við getum gert mun betur. Þau umhverfisslys sem hafa verið sem snúa að stroki eða hvað sem þetta er nú kallað þegar fiskur sleppur úr kví eru eitthvað sem á ekki að geta átt sér stað. Við verðum að taka betur utan um eldið og þeir sem stunda þetta eldi verða að gera mun betur í þessu.

Eins og fram kom í máli hæstv. ráðherra áðan þá fór atvinnuveganefnd í skoðunarferð eða heimsókn síðastliðinn vetur til bæði Færeyja og Noregs. Atvinnuveganefnd heimsótti mikið og gott fyrirtæki í Færeyjum, Bakkafrost, og forstjóri þess fyrirtækis sagði eina góða setningu: Fiskur sem sleppur er tapaður peningur, fiskur sem drepst er tapaður peningur. Þetta er svona svipað eins og, af því að núna styttist í sauðburð hjá okkur bændum, ef gólfið væri þannig að það væri gat niður í haughúsið og það færi alltaf eitt og eitt lamb þar ofan í í sauðburði og ég myndi síðan ekkert gera í því. Þetta er eitt af því sem við þurfum að horfast í augu við og við þurfum að ná utan um það til þess að skapa sátt um greinina á einhvern hátt. Við heyrum það alveg á þeim ræðum sem hafa verið fluttar hér í dag að sitt sýnist hverjum í þeim efnum. Þetta eru allt sjónarmið sem eru mikilvæg sem eru að koma fram í umræðunni og einhvern veginn þurfum við síðan að reyna að ná að taka utan um þau sjónarmið.

Ég ætla aðeins að koma inn á, frú forseti, það sem hefur verið helst verið rætt hér í dag sem snýr að því hvort leyfin séu ótímabundin eða tímabundin, mikilvægir punktar hafa komið hérna fram hvað það varðar. Mér finnst mikilvægt í því samhengi að við horfum til 24. gr. lagafrumvarpsins þar sem kemur ágætlega fram að við horfum til þess að leyfin séu ótímabundin. Hér segir í því samhengi, frú forseti:

„Úthlutun smitvarnasvæða samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir einstaka smitvarnasvæðum eða yfir heimildum til eldis á smitvarnasvæðum.“

Mér finnst þetta mikilvægur punktur í þessu samhengi en aftur á móti skil ég vel þær áhyggjur sem hafa komið fram hjá hv. þingmönnum hér í ræðum í dag sem snúa að ótímabundnum leyfum. Mér finnst mikilvægt að atvinnuveganefnd taki vel utan um það og velti því fyrir sér hvort við getum mætt hlutunum á einhvern annan hátt. Eins og kom fram hjá hæstv. ráðherra áðan þá eru leyfin í Færeyjum gefin út til 12 ára og síðan eru þau endurnýjuð í framhaldinu. Það sama á við um það sem er hér í dag, þau leyfi eru til 16 ára og síðan gerist það af sjálfu sér að menn geta endurnýjað þau. En í þessu samhengi, þegar talað er um ótímabundið leyfi eins og kemur fram í þessu frumvarpi, þá eru ákvæðin mjög sterk þess efnis að hægt er að svipta fyrirtækin þessum ákveðnu leyfum. Það komu fram áhyggjur hjá hv. þm. Teiti Birni Einarssyni áðan þess efnis að hann teldi t.d. að þetta væri of hart. Ég ætla ekki að leggja mat á það, ég á eftir að fara betur yfir frumvarpið. En mikilvægi þess að hafa skýran og góðan regluramma utan um þessa mikilvægu atvinnugrein er vissulega mikið.

Maður hrekkur við við lestur á frumvarpinu og setur spurningarmerki við suma þætti sem þar koma fram og ég hef aðeins áhyggjur af því sem snýr að sektargreiðslunum. Nú er það vissulega svo að fyrirtækin sem hér eru með leyfi til að stunda sjókvíaeldi á frjóum fiski eru misjöfn að stærð og misjöfn að styrkleika. Það getur alveg verið svo að við þurfum að horfa til þess að minni fyrirtækin eigi mun erfiðara með það, ef eitthvað kemur upp á hjá þeim, að eiga við þessar sektargreiðslur. Það hefur sömuleiðis komið fram í umræðum hér að sumir hv. þingmenn telja þetta ansi hraustlegar sektargreiðslur sem hér er um rætt. Ég ætla ekki að leggja mat á það en ég hef samt verulegar áhyggjur af því að við séum að taka töluvert stórt skref, sérstaklega gagnvart þessum minni fyrirtækjum, því að það hefur mikið verið talað hér um eignarhald á sumum af þessum fyrirtækjum og þessi fyrirtæki sem ég hef áhyggjur af eru alfarið í eigu íslenskra aðila. En síðan verðum við líka að horfa til þess að það eignarhald sem hefur verið gagnrýnt hér hefur sömuleiðis tekið ákveðnum breytingum undanfarið. Við megum ekki gleyma því að þegar við byrjuðum að fara þessa vegferð sem snýr að sjókvíaeldinu eða öðru lagareldi þá voru það vissulega Norðmenn sem komu hérna til, sérstaklega í ljósi þess að það voru Íslendingar sem höfðu ekki trú á því að fara þessa vegferð á sínum tíma. Við gleymum því nú stundum í umræðunni þegar við erum að tala um eignarhaldið og að þarna sé við að eiga einhver norsk stórfyrirtæki. En fyrirtækin eru að skapa ákveðinn arð og skilja hér eftir og það verður alltaf þannig þegar svona lagað verður til að það fylgja afleidd störf og annað. Við sjáum hvað hefur gerst á Vestfjörðum og sömuleiðis í suðurfjörðum Austfjarða þar sem fiskeldi hefur heldur betur snúið við bágri byggðaþróun. Ég get nefnt Djúpavog sem dæmi í því kjördæmi sem ég er í, sem var ekki svipur hjá sjón hér fyrir nokkrum árum, þar er blússandi mannlíf og blússandi uppgangur og það er fiskeldinu fyrst og fremst að þakka og síðan eru það aðrar skapandi greinar sem koma yfirleitt í kjölfarið.

Við getum ekki farið í gegnum svona umræðu öðruvísi en að velta því fyrir okkur hvernig við getum með öllum ráðum sem til eru staðið vörð um íslenska villta laxastofna. Mér finnst vera tekið ágætlega utan um það í þessu frumvarpi. En ég tel að atvinnuveganefnd þurfi að kafa enn betur ofan í það, sömuleiðis til þess að öðlast betri skilning á því hvað er átt við þegar kemur að þessu stroki. Einnig finnst mér mjög áhugavert að velta því fyrir sér, sem yrði þá bara ákveðin framtíðarmúsík, að framtíðin í opnu sjókvíaeldi verði sú að sá lax sem þar er eða fiskur sé bara ófrjór. Það eru fyrirtæki t.d. hér á landi, t.d. Benchmark veit ég, sem eru að þróa þá framleiðslu. Við þekkjum það sömuleiðis að í regnbogasilungi er svo sem engin hætta á erfðablöndun þar því að sá fiskur er vissulega ófrjór. Þetta er einn af þessum þáttum sem mér finnst vera hægt að horfa til sömuleiðis sem snýr að því að vernda vistkerfi og þá villtu fiska sem ganga hér í ár árlega. En síðan verður það alltaf þannig að við eigum eftir að sjá og verðum bara að vera undir það búin hér á hinu háa Alþingi að við eigum eftir að fá ákveðna gagnrýni á það sem við erum að gera hér í þessu. En það er okkar hlutverk að halda utan um þessa mikilvægu löggjöf, gera hana betri en hún er og ég vona það svo sannarlega, frú forseti, að okkur takist vel til í þeirri vinnu sem fram undan er hjá hv. atvinnuveganefnd. Hún verður strembin en ég reikna með því að hún verði bara áhugaverð og skemmtileg á sama tíma því að það hefur verið mjög fróðlegt að hlusta á mjög margar góðar ræður sem hafa verið haldnar hér í dag.