154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

lagareldi.

930. mál
[16:57]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni sína yfirferð. Hann reifar mörg þeirra álitaefna sem hv. nefnd þarf að fara yfir núna á næstu vikum. Hann talaði t.d. um þær áhyggjur sem hér hafa komið fram varðandi sektarfjárhæðir sem sumum finnst vera blússandi upphæðir en hv. þingmaður ætlaði ekkert að leggja mat á það. Ég ætla að gera tilraun til að leggja mat á það. Þetta eru ekkert blússandi upphæðir. Það er alveg eðlilegt að fjárhæð sektar miðist við eitthvað, sé hlutfall af ábatanum eða ávinningnum við brotið eða hvað það er. Þetta á við í samkeppnislögum. Þetta á við í allri atvinnustarfsemi þar sem ávinningur getur hlotist af því að uppfylla lagaskyldur ekki upp á punkt og prik. Þess vegna eiga sektir að vera hlutfall af einhverju sem nær utan um ábatann. Í ábatasamri grein verða fjárhæðirnar náttúrlega háar. Þannig virkar það. Það er mikill gróði í sjókvíaeldi, þar með verða sektirnar háar, þannig bara virkar prósentureikningar. En þetta verður væntanlega skoðað í nefndinni.

Mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann út í atriði sem ég hef nokkrar áhyggjur af og það er hvernig hagsmunir almennings séu tryggðir með þessu frumvarpi og hver skoðun þingmannsins er á því. Með því að leyfin verði ótímabundin þá fækkar tilvikunum þar sem almenningur á samkvæmt gildandi lögum einhverja leið inn, einhverja kæruleið. Ef engin leyfi eru gefin út af því að þau eru ótímabundin þá er ekki nein útgáfa leyfis sem er hægt að kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála reglulega. Hér rekumst við á skallablett á íslenska lagaverkinu sem er innleiðing Árósasamningsins (Forseti hringir.) vegna þess að í 9. gr. hans þá eru ákvæði um leiðir til að sækja stjórnsýslu- og dómsmeðferð fyrir almenning gagnvart stjórnvöldum og einkaaðilum. (Forseti hringir.) Þetta er óvenjulegt á Íslandi og vonlaust að kæra. Þurfum við ekki að laga þetta áður en farið er af stað í það (Forseti hringir.) að klára þetta frumvarp til þess að hagsmunir almennings séu tryggðir?

(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hv. ræðumenn á að virða ræðutíma.)