154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

lagareldi.

930. mál
[17:00]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Fyrst það sem snýr að sektargreiðslunum, þá kom ég nú, held ég, ágætlega inn á það í minni ræðu að ég hef áhyggjur af minni fyrirtækjunum hvað þetta varðar. Það er ákveðin stærðarhagkvæmni í þessum rekstri og það eru ekki sömu aðilar sem standa að baki þessum tveimur minni fyrirtækjum sem um er rætt í þessu eldi og ég ætla bara að hafa áhyggjur af því. Það sjónarmið sem hv. þingmaður velti hér upp varðandi aðkomu almennings ef leyfin eru ótímabundin er áhugavert. Mér finnst þetta áhugavert sjónarmið og ég hef ekki svar á reiðum höndum hvað það varðar. En ég mun að sjálfsögðu hvetja til þess að þetta verði skoðað í nefndinni og farið yfir það hverjir möguleikar almennings eru á því að koma að. Ég get ekki í sjálfu sér svarað því betur en svona, hv. þingmaður, að þetta þurfum við að skoða betur. En þetta er ákveðið sjónarmið sem hefur svo sem ekki verið rætt í þessu samhengi, ekki hér í dag alla vega og ég hef ekki rekist á það í frumvarpinu heldur.