lagareldi.
Frú forseti. Ég þakka svarið og ég held að hér séum við bara að rekast á enn eitt dæmið um það hvernig hagsmunir náttúrunnar og almennings eru oft eftiráhugsun þegar kemur að því að setja lög hér á landi. Árósasamningurinn á að vera fyrsta stopp þegar þú ferð að slá lagaramma utan um einhverja starfsemi hér á landi. Hann er það náttúrlega ekki vegna þess að stjórnvöld hafa látið undir höfuð leggjast að innleiða hann af fullum krafti. Það er vegna þess að hann þvælist dálítið fyrir. Það þvælist dálítið fyrir að þurfa að taka alltaf tillit til almennings og náttúrunnar frekar en að ræsa bara jarðýtur og keyra af stað eins og gamli tíminn vill. En þetta er hugarfar sem við þurfum að breyta. Þess vegna vona ég að þetta verði tekið til gagngerrar skoðunar í umfjöllun nefndarinnar. Þetta snertir náttúrlega ekki bara það mál sem hér liggur fyrir heldur allt litróf mála sem fara í gegnum þingið. Þessir skavankar sem er á innleiðingu Árósasamningsins koma reglulega upp og hefur ítrekað verið lagt til að bæta þar úr.
Mig langar hins vegar í mínu síðara andsvari að spyrja hv. þingmann um þennan skiptimarkað sem verður á smitsvæðum, í bráðabirgðaákvæði II eða þar um bil, þar sem aðilar sem fá úthlutað svæðum þurfa á einhverjum tímapunkti að gera skipti sín á milli, annars missir annar þeirra það svæði sem honum hefur verið úthlutað. Þetta er hugmynd sem meikar alveg sens, það er, myndi ég halda, skynsamlegt að vera með einn aðila innan hvers hólfs. En er ekki hættan sú að það verði svona kapphlaup (Forseti hringir.) í að merkja sér svæði núna á næstu misserum án þess endilega að ætla að standa þar í einhverjum rekstri, bara til að eiga skiptimyntina inn á markaðinn þegar þar að kemur? (Forseti hringir.) Þetta er svona eins og sportveiðin sem varð hjá togurum korteri áður en kvótakerfinu var komið á.