lagareldi.
Frú forseti. Ég stend í þeirri meiningu að það sé þegar búið að úthluta þessum svæðum eins og það er í dag. Síðan var hv. þingmaður að velta fyrir sér þessum sóttvarnahólfum eða smithólfum eða hvað þetta er nú kallað og ég skildi það þannig að það væru tveir aðilar þarna og þá held ég að það sé í grunninn þannig að þeir missa það báðir sem um er rætt í þessu samhengi, þá eiga menn að missa leyfið, svo að því sé komið á framfæri. En aftur á móti er það þannig, hv. þingmaður, að þau leyfi sem eru í dag, þar sem menn eru á ákveðnum svæðum, gilda áfram.