lagareldi.
Virðulegi forseti. Við ræðum, eins og hefur farið nokkuð vel yfir hér í dag, mikilvægt mál sem snertir lagareldi. Fólk tengir þetta kannski fyrst og fremst við fiskeldi og það er ekki óeðlilegt enda miklir hagsmunir í húfi. Ég vil draga fram og undirstrika að fiskeldið er mikilvæg atvinnugrein, vaxandi atvinnugrein. Verðmætasköpunin er mikil og hún hefur mikla þýðingu fyrir þjóðarbúið en ekki síður fyrir ákveðin landsvæði hér á Íslandi. Ég segi oft við vini mína sem vilja helst banna fiskeldi — þau gera það af miklum metnaði fyrir villta laxastofninn og það er margt fleira sem blandast inn í eins og kærleikurinn fyrir umhverfi og náttúru sem við berum öll í brjósti — að það sé ekki sanngjarnt gagnvart bæði atvinnugreininni og þeim landsvæðum sem hafa stólað á ramma sem við hér á þingi höfum samþykkt lýðræðislega, gerðum það, minnir mig 2004, um að í rauninni væri fiskeldi ekki heimilað nema á þremur stöðum á landinu, þ.e. á Vestfjörðum, fyrir norðan og síðan fyrir austan. Eftir því hafa bæði fyrirtækin og landsbyggðin unnið, oft brothætt svæði sem eru að fá meiri festu, meiri von, meiri framtíð, með því að geta stólað á öfluga atvinnugrein sem fiskeldið getur verið. Það hefur sýnt það fram til þessa, það er margt gott sem er að gerast þar. En það er líka allt of brotakennt og atriði sem hafa komið fram sem vekja tortryggni m.a. í garð greinarinnar og mér finnst það miður.
Mér finnst líka miður að upplifa það hér að það eigi að fara þessa leið sem er risamál þegar við ættum í rauninni að vera að einbeita okkur að tala um dýravelferðina í málinu, tala um kröfurnar sem við gerum til umhverfis- og náttúruverndar, tala um það hvað fiskeldi skiptir miklu máli fyrir þessi landsvæði sem ég nefndi hér áðan. Það er laumað inn, ég ætla ekki að segja í skjóli nætur, svona grundvallarbreytingu sem er ekkert svar við svörtu skýrslu Ríkisendurskoðunar. Þvert á móti er hún alls ekki svar við því. Það er laumað inn þessari grundvallarbreytingu um að það eigi að afhenda leyfin út í hið óendanlega. Það er ekki vakin athygli á þessu nema bara þegar en málið er komið fram og við erum að fara að lesa málið. Þetta er atriði sem er algerlega á skjön við réttlætiskennd almennings. En það sem mér finnst verra er að ríkisstjórnin ber ábyrgð á því að byggja upp tortryggni og neikvæðni gagnvart atvinnugrein sem við þurfum á að halda. Það finnst mér sorglegt að upplifa. Ég vil meina að meginábyrgðin varðandi þessa tortryggni og þessa litlu sátt sem er til staðar gagnvart fiskeldinu liggi ekki síst í þessum einstrengingshætti Sjálfstæðisflokksins fyrst og fremst að vilja alltaf gefa auðlindir þjóðarinnar, sama hvað tautar og raular. Það er þess vegna sem þessi tortryggni hefur byggst upp. Ég veit af könnunum þar sem allt of margir meðal íslensku þjóðarinnar eru frekar neikvæðir gagnvart fiskeldinu. Það er ekki af því að þetta er vond atvinnugrein. Það er út af því að fólki misbýður að það eigi aftur að gefa auðlindir í eigu þjóðar og gera það líka meðan við erum ekki einu sinni að koma með auðlindaákvæði í stjórnarskrá sem takmarkar og bannar það að afhenda auðlindir varanlega.
Þegar maður leggur þetta allt saman, þegar við formennirnir erum búin að vera í sjö ár að tala vel og oft mjög uppbyggilega um breytingar á stjórnarskrá, sjálfsagðar breytingar sem ég hef farið áður yfir hér, þá er stóri hnúturinn alltaf auðlindaákvæðið. Þá kemur alltaf Sjálfstæðisflokkurinn og stoppar það og segir að það sé ekki sátt um það af því að sáttin er ekki innan þeirra raða. Ég vil hins vegar fullyrða það að meira en 90% þjóðarinnar vilja tryggja auðlindir þjóðar í stjórnarskrá og það sé ekki heimilt að afhenda þær varanlega. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða það. Og þegar það ákvæði er ekki til staðar í stjórnarskrá og síðan er verið að koma hér með frumvarp sem gerir einmitt nákvæmlega þetta sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur barist fyrir, að afhenda auðlindir varanlega, þá er súrt að upplifa þessa tortryggni sem byggist upp gagnvart fiskeldinu.
Það er margt í frumvarpinu sem ég tel allrar athygli vert og ég tel mikilvægt að það verði farið vel yfir það. Ég vil meina að í heildina, þó að ég sé ekki búin að ná að lesa alla greinargerðina, sé verið að skerpa á kröfum um dýravelferð og náttúruna, það má örugglega gera meira þar og það er eitthvað sem nefndin fer yfir. Það sem ég hins vegar staldra við er náttúrlega fyrst og fremst stóra málið, að afhenda auðlindina ótímabundið, annars vegar það. En síðan er hitt sem vekur tortryggni. Í upphafi þegar frumvarpið var kynnt á vef Stjórnarráðsins þá áttu framleiðsluheimildirnar að takmarkast ef strok úr kvíum ætti sér stað. Það fólst í þessu að laxeldisfyrirtækin áttu að geta misst kvóta eða framleiðsluheimildir ef þau gerðu mistök í sínum rekstri. Þessi viðurlög hafa hins vegar verið tekin út af ráðuneytinu eftir að umsagnartími var liðinn og áður en frumvarpið var lagt fyrir Alþingi hér í lok mars. Þetta veldur mér ákveðnum áhyggjum.
Ég vil undirstrika það að við þurfum að halda áfram að byggja upp þessa atvinnugrein en við þurfum að gera það með skýrum ramma, sterkum og ströngum kröfum þegar kemur að náttúru, þegar kemur að umhverfi. Kröfurnar verða að vera þannig að það sé hægt að fylgja þeim eftir með eftirliti, ekki bara sektum heldur líka því að fyrirtæki geti misst framleiðsluheimildir ef strokið er t.d. geigvænlegt eins og við höfum nú þegar upplifað. Ég vil meina að við höfum alveg ótrúleg tækifæri núna til að byggja ramma utan um atvinnugrein sem við þurfum á að halda. Við skulum ekki gleyma því heldur að þegar við skoðum t.d. kröfur um matvælaframleiðslu þá hafa t.d. Sameinuðu þjóðirnar undirstrikað það að við þurfum að framleiða meira úr sjó. Við þurfum að fá meiri fisk á borð heimsins. Þá þurfum við að fara í fiskeldi en þá verður það að vera gert á skynsamlegan hátt með ströngu regluverki.
Ég velti því líka fyrir mér hvort við eigum ekki að skoða vel hvort fyrirtækin geti gert tímasetta áætlun um aðgerðir til að ná kolefnisfótspori sínu niður í núll þannig að það verði mælanlegt í áföngum. Ég held að það skipti mjög miklu máli og það er líka í samræmi við það sem ýmsir flokkar hafa bent á, m.a. við í Viðreisn. Ég vil undirstrika það að stefna Viðreisnar er að eldi laxfiska er mikilvægt og það er umfangsmikið í byggðum landsins en þá er um leið mikilvægt að efla undirstöðu greinarinnar, m.a. hvað varðar umhverfisáhrif hennar og dýravelferð. Við erum sem sagt eindregnir stuðningsmenn þess að byggt verði upp fiskeldi gegn því að það verði skýrar, gegnsæjar kröfur. Við teljum að við eigum að læra af reynslu annarra þjóða, móta skýrt regluverk og skilvirkt eftirlit í kringum starfsemina alla með sjálfbærni í huga. Þetta skiptir mjög miklu máli í okkar huga. Ég tel að við eigum að reyna að taka umræðuna um kolefnisfótsporið og þessa mælanlegu áfanga skarpar inn í þessa yfirferð.
Þegar Ríkisendurskoðun setti fram sína kolsvörtu skýrslu þá undirstrikaði hún það að ráðuneytið þyrfti að taka af allan vafa um það hvort rekstrarleyfi ættu að teljast tímabundin eða ótímabundin. Ráðherrann sagði hér áðan að skoðanir væru skiptar um hvaða leið ætti að fara. Í mínum huga eru skoðanir ekki skiptar, það eru bara tvær mismunandi leiðir sem er hægt að fara. Það er annars vegar leið sérhagsmuna og hins vegar leið almannahagsmuna. Mér finnst ríkisstjórnin undir forystu Sjálfstæðisflokksins hafa valið leið sérhagsmuna með því að veita varanleg rekstrarleyfi, eins og segir í frumvarpinu. Það eru risamistök. Það er eins og það sé markvisst verið hjá ríkisstjórninni að blása í herlúðra í staðinn fyrir að segja: Gott og vel. Hvernig getum við náð sátt núna strax um að byggja upp þessa atvinnugrein sem skiptir okkur máli þegar kemur að samkeppnishæfum lífskjörum og er þýðingarmikil í verðmætasköpun? Hvernig getum við gert það þannig að fólk treysti því að það sé verið að fara eftir lögum og reglu, að eftirlitið sé nægilega mikilvægt og sterkt þó að það séu ríkar kröfur varðandi umhverfi og náttúru? Það er engin vissa þegar við horfum á þetta frumvarp þegar kemur að þessum þáttum þó að ég undirstriki það að málið er þó skarpara þegar kemur að umhverfisvernd og dýravernd heldur en áður var. En það var kannski ekki úr háum söðli að detta.
Ég vil draga líka fram reynsluna af kvótakerfinu, við eigum svolítið að draga lærdóm af því. Fiskveiðistjórnarkerfið sem við höfum í dag er gríðarlega mikilvægt og það er merkilegt. Við undirstrikuðum sjálfbæra nýtingu byggða á vísindalegri ráðgjöf og þetta verðum við að taka mun skýrar inn í allt sem tengist fiskeldinu líka. Ég skil það mjög vel að Hafrannsóknastofnun, sem við eigum að treysta, þurfi að byggja upp þekkingu, m.a. í tengslum við áhættumatið sem er svolítið lykillinn að öllu því hvernig við tökum ákvarðanir um framhaldið í fiskeldinu. Hafrannsóknastofnun þarf þá að vera með svigrúm til að byggja upp þá þekkingu sem við getum byggt á þegar kemur að ráðgjöf og ákvörðunum um fiskeldið. Þetta eigum við að læra af kvótakerfinu því að þetta hefur gefist vel þar.
Síðan sjáum við hvernig umhverfi hafsins, í tengslum við fiskveiðistjórnarkerfið, hefur batnað með sjálfbærri nýtingu en það sem stendur eftir varðandi kvótakerfið og er lærdómurinn sem við verðum að taka með okkur, er það sem var skilið eftir þegar við fórum í kvótakerfið og fórum síðar í framsalið, allt mikilvæg skref sem urðu til þess að ýta undir öryggi í kerfinu, framlegð og verðmætasköpun. Hlutur þjóðarinnar var skilinn eftir. Ákvörðun um auðlindagjald fyrir þjóðina af því að hún á þessa auðlind. Síðan árið 2000, þegar auðlindanefnd undir forystu Jóhannesar Nordals skilaði skýrslu, höfum við ekki komist lengra heldur en það að vera með það veiðigjald sem er í dag. Það merkilega er að við sjáum það, eins og reynslan var m.a. í Noregi, að kostnaðarliðir snarhækkuðu hjá útvegsfyrirtækjum eftir að formúla svipuð og veiðigjaldaútreikningur okkar var sett á í fiskveiðistjórnarkerfinu. Það sama gildir örugglega um fiskeldi.
Það sem ég er að segja hér er að við getum ekki leyft okkur hér á þingi að hunsa söguna þegar kemur að fiskveiðistjórnarkerfinu. Það er stærsti þátturinn í því að það er enn þá tortryggni meðal þjóðarinnar þegar kemur að sjávarauðlindinni. Það má ekki gerast líka með fiskeldið að við tökum þau merki ekki alvarlega, að við reynum ekki að leggja okkur meira fram um að ná sátt um fiskeldið sem við viljum byggja upp. Þess vegna held ég að það verði mikilvægt að ríkisstjórnarflokkarnir — það er ekki þannig að Vinstri græn og Framsókn hafi ekki viljað tímabundin leyfi. Formaður Framsóknarflokksins lagði ítrekað fram frumvörp í ríkisstjórninni 2013–2016 um að tímabinda heimildir í fiskveiðistjórnarkerfinu frá 18 árum og upp í 23 ár en það stoppaði Sjálfstæðisflokkurinn þá. Ég vona innilega (Forseti hringir.) að við berum gæfu til þess að fara vel yfir þetta mál. Það eru risahagsmunir í húfi, bæði þegar kemur að umhverfi, þegar kemur að náttúru en ekki síst þegar kemur að heildarhagsmunum þjóðarinnar sem á auðlindina í hafinu.