lagareldi.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni yfirferðina og eins og svo varðandi mörg önnur þá staldra ég við þessa hugmynd um að leyfin séu veitt ótímabundið eins og hv. þingmaður fjallaði töluvert um. Fyrir utan að þetta, eins og hv. þingmaður nefnir, búi til ákveðið vantraust, þá býr þetta til tortryggni. Almenningi misbýður þetta. Ekkert er svo lítilvægt að hægt sé að gefa það frá sér ótímabundið. Þá vekur þetta líka upp spurninguna: Til hvers? Stendur þessi geiri það veikt að hann þurfi ótímabundin afnot af fjörðum þessa lands til að geta gengið upp?
Mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann vegna reynslu og fyrri starfa. Nú nefndi hæstv. ráðherra í andsvörum fyrr í dag að þessi ráðstöfun að hafa leyfin ótímabundin væri ekki óafturkræf. Ég skil hana sem svo að þing framtíðarinnar geti þá mögulega komist að þeirri niðurstöðu að það hafi verið slæm hugmynd að ráðstafa leyfunum án tímamarka og geti þess vegna breytt lögum einhvern tímann síðar meir ef reynslan segir okkur það. Hversu auðvelt telur þingmaðurinn að það sé? Hversu vel hefur gengið að vinda ofan af meintum eignarrétti sægreifanna á fiskveiðiauðlindinni? Þegar þetta er komið í lög, hversu afturkræft er það í raun og veru, eins og hæstv. ráðherra komst að orði?