lagareldi.
Forseti. Ræða hv. þingmanns var um margt ágæt þegar hún hélt sig við frumvarp hæstv. matvælaráðherra og var að ræða um efnisatriði frumvarpsins og fór yfir það að fiskeldisgreinin væri mikilvæg og við þyrftum að gæta að jafnvæginu um verndun og nýtingu, margt ágætt í því. En hv. þingmaður fór algjörlega út af þegar hún fór að reyna að kenna Sjálfstæðisflokknum um allt sem miður fer, með fráleitar ásakanir um það að Sjálfstæðisflokkurinn sé að gefa hér auðlindir þjóðarinnar, fráleitar ásakanir. Annan eins pólitískan strámann og jafn illa búinn hef ég ekki séð í lengri tíma. Og að spyrða saman við þá árás á Sjálfstæðisflokkinn með þessum ómálefnalega hætti þá breytingu sem lögð er til í frumvarpinu um að rekstrarleyfi verði ótímabundið en ekki tímabundið stenst enga skoðun. Það stenst enga skoðun, frú forseti. Það er ekki hægt að jafna þessu saman. Það er bara þannig að Sjálfstæðisflokkurinn, ef út í það er spurt, fer reyndar ekki með matvælaráðuneytið, kom ekki að og hafði ekki frumkvæði að samningu þessa frumvarps. Þetta ákvæði var inni í þeim drögum sem voru birt í samráðsgátt. Það er einfaldlega þannig, þetta var þar inni, var ekkert sett inn í skjóli nætur. Við getum verið hér í langri deilu um það og ég hef í sjálfu sér enga sérstaka sterka skoðun á því hvort þetta er tímabundið eins og nú er í gildandi lögum eða ótímabundið. En, frú forseti, það er ágætt að nota tækifærið og spyrja hv. þingmann um það sem ég hef áhyggjur af: Er hv. þingmaður sammála mér um mikilvægi þess að löggjöfin búi til fyrirsjáanleika og hún sé til þess fallin að tryggja stöðugleika og hún byggi á hlutlægum viðmiðum sem fyrirtæki og fólk getur lagt til grundvallar til þess að byggja upp þessa atvinnugrein, fjárfest í búnaði, fjárfest í umhverfisvænum lausnum? Er þetta ekki aðalatriðið, frú forseti?