154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

lagareldi.

930. mál
[17:34]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er einfaldlega þannig að með því að hafa annaðhvort leyfi tímabundið eða ótímabundið þá er ekki verið að afhenda einum eða neinum neina auðlind í eigu þjóðarinnar. Það er ekki þannig. Þessu verður ekki þannig saman jafnað. Það geta verið ýmsar útfærslur á því í löggjöfinni hvort leyfi eru tímabundin eða ótímabundin, hvort þau skuli háð endurskoðun. Mér skilst að það sé þannig í tilviki álfyrirtækja, starfsleyfa álfyrirtækja, að leyfi skuli háð endurskoðun. Þetta eru allt útfærsluatriði. Ég hef sagt það og sagði í minni ræðu að ég hefði ekki mjög sterkar skoðanir á þessu. Aðalatriðið er, og ég fagna því að hv. þingmaður er sammála mér, að löggjöfin byggi á skýrum og hlutlægum viðmiðunum þar sem fyrirsjáanleiki ræður ríkjum. Og talandi um strámann, það er samt erfitt að átta sig á því hvort hv. þingmaður er hér að tala um umgjörð fiskeldis eða umgjörð fiskveiðistjórnarkerfisins: Við erum hér að tala um umgjörð fiskeldis. Það er einfaldlega þannig að ef hv. þingmaður vill tala um umgjörð fiskveiðistjórnarkerfisins þá hefur Sjálfstæðisflokkurinn ekki afhent einum eða neinum neitt af auðlind þjóðarinnar í þeim efnum.