lagareldi.
Forseti. Ég var ekkert að sakast við heimamenn í einu eða neinu hvað eftirlit varðar það o.s.frv., þetta er bara dæmi um það hvernig peningaáhrifin eru á samfélög víðast hvar um landið. En hvað eftirlitið varðar þá er þetta mjög gott svar hjá hv. þingmanni. Þetta er nákvæmlega það sem við erum búin að vera að benda á og það er ríkisstjórnin sem ber ábyrgð á þessum eftirlitsstofnunum, að þær geti rekið sig og geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Hluti af því er að koma hérna inn með fjármálaáætlun og fjárlög og segja okkur að til þess að hægt sé að sinna lögbundnu eftirliti þá muni það kosta þennan pening, einmitt til þess að það sé ekki þörf á því að fara frá Selfossi þegar fólk hefur tíma af því að það er svo fátt fólk. Fiskistofa hefur sagt okkur ítrekað: Við erum með allt of lítið af fólki til að sinna eftirliti með öllum vigtunum allt í kringum landið. Það er viljandi gert að hafa eftirlitið svona verulega skert af því að það er ítrekað búið að benda á að þetta er vandamál og það er ekki brugðist við því. Ef hv. þingmaður segir að lausnin sé í þessu frumvarpi þá var hún það líka 2018. Þá áttu að vera þessi eftirlitsákvæði og allt að vera æðislegt ef það væri nægilega mikið eftirlit, sem hefur síðan ekki verið framkvæmt af því það var ekki fjármagnað. Klassíska vandamálið.
Hitt sem ég hefði áhuga á að heyra betur frá hv. þingmanni var að hún velti því fyrir sér hvort þetta frumvarp yrði samþykkt, vonandi í júní eins og hún sagði, en jafnvel ekki. Af hverju er verið að eyða tíma þingsins á þennan hátt ef það á ekki að ná að klára að vinna málið? Það er nóg af öðrum málum í atvinnuveganefnd og ef það er svona rosalega mikil vinna sem þarf að leggja í þetta mál þá tekur það tíma frá öðrum málum. Hvaða önnur mál á að leggja til hliðar?