lagareldi.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. matvælaráðherra fyrir ítarlega yfirferð á þessu frumvarpi fyrr í dag. Eins og fram hefur komið eru áskoranirnar í lagareldi margar. Þetta frumvarp markar svo sannarlega tímabært og þarft skref í að byggja heildrænan lagaramma utan um lagareldi á Íslandi.
Mig langar hér í ræðu minni að leggja áherslu á umhverfissjónarmið og þau tækifæri og áskoranir sem lagareldi hefur í þeim skilningi. Sé rétt að því staðið getur lagareldi verið hluti af vegferð okkar um að uppfylla markmið um sjálfbærni, alþjóðleg loftslagsmarkmið og markmið um vernd líffræðilegrar fjölbreytni. Frumvarpið hefur það m.a. að markmiði að lágmarka umhverfisáhrif og lögð er áhersla á mikilvægi þess að greinin byggist upp á grundvelli sjálfbærni, vísindalegrar þekkingar og verndar villtra laxastofna. Við framkvæmd laganna er svo lögð mikil áhersla á að bæta vistkerfisnálgun og varúðarnálgun. Vistkerfisnálgun hefur í rauninni verið mikil áhersla hjá matvælaráðuneytinu síðastliðin ár sem er gríðarlega mikilvægt, enda á náttúran að njóta vafans og auðlindanýting verður að vera í sátt við umhverfis- og loftslagssjónarmið. Allri auðlindanýtingu fylgir einhver kostnaður í umhverfislegum skilningi en það er hlutverk okkar að tryggja að það sé vel að henni staðið.
Það sem hefur verið umdeildast í samhengi lagareldis er sjókvíaeldið eins og komið hefur fram í þessum ræðustóli í dag og það hefur auðvitað markast af vissu stjórnleysi í lagalegum skilningi framan af. Sjókvíaeldi á sér yfir fimm áratuga sögu en fyrstu lögin um fiskeldi komu fram árið 2008. Undanfarin ár hafa komið upp alvarleg mál þar sem strok úr opnum sjókvíum hefur stefnt náttúrunni og lífsviðurværi þeirra sem af laxám lifa í hættu. Þetta er óásættanlegt. Stroki á eldisfiski fylgir alvarleg áhætta og þrátt fyrir vilja til að gera betur er ljóst að jafnvel undir ströngu eftirliti eru líkur á að strok eigi sér stað. Það er staðreynd að mannleg mistök eru meginástæða stroks og frumvarpið er skýrt þegar kemur að því að herða eftirlit og viðurlög við stroki. Í samhengi við það umhverfistjón sem strok getur valdið þá endurspegla sektarfjárhæðir laganna mengunarbótaregluna, þ.e. að sá sem mengar borgar. Þessi strangari ákvæði eru jákvæð þróun að mínu mati því að þau leggja aukna ábyrgð á framleiðandann og skapa einnig hvata til þess að gera betur.
Landeldi á sér töluvert langa hefð á Íslandi en hefur hingað til verið smátt í sniðum. Á heimsvísu er heildarframleiðsla landeldis einungis um 0,3% af öllu fiskeldi en það eru áform um vöxt innan greinarinnar á næstu árum hér á landi og víðar og jafnvel talið líklegt að hún verði með tímanum stærri en sjókvíaeldi. Þar sem gildandi lagaákvæði greinarinnar byggjast fyrst og fremst á þörfum sjókvíaeldis þá ná þau illa utan um sérstöðu landeldis og þetta frumvarp er því til þess fallið að reyna að ná betur utan um það. Út frá sjónarhorni vistkerfisins þá fylgir landeldi töluvert minni hætta á umhverfisáhrifum af völdum losunar lífrænna efna auk þess sem það eru hverfandi líkur á stroki. Landeldi er þó ekki laust við umhverfisáhrif og það krefst töluvert meiri orku- og vatnsnotkunar en sjókvíaeldi. Það er því engin töfralausn og það þarf að gæta að því að áform um lagareldi séu í takt við stefnumótun í orkuskiptum til að mynda.
Hafeldi er svo grein sem enn er á hugmyndastigi hér á landi en aukinn áhugi hefur verið á því síðastliðin ár. Það er þó þörf á viðamiklum rannsóknum áður en farið er út í raunhæf áform um hafeldi. Frumvarpið leggur upp með að áform um hafeldi verði tekin í litlum skrefum og byggi á vísindalegri nálgun, ólíkt því sem gerðist með sjókvíaeldið á sínum tíma. Engin tilraunaleyfi eða rekstrarleyfi verði gefin út án nauðsynlegra grunnrannsókna. Þá verða engin rekstrarleyfi gefin út fyrr en áhættumat og burðarþolsmat liggur fyrir.
Ég tel mikilvægt að varúðarreglunni sé beitt til hins ýtrasta þegar kemur að lagareldi en að mínu mati er síðan mikilvægt að farið verði í heildstæða endurskoðun á lagarammanum í kringum greinina. Það er ýmislegt sem má skoða til að tryggja að umhverfisáhrif vegna greinarinnar séu í lágmarki. Eins eru ýmsar tækninýjungar og rannsóknir í greininni sem munu fara vaxandi á næstu árum og frumvarpið boðar t.d. skattahvata við notkun á ófrjóum fiski og stærri seiðum og sama gildir um lokaðar sjókvíar sem enn hafa ekki verið teknar í notkun hér á landi. Innleiðing smitvarnasvæða er svo gríðarlega mikilvægt skref sem kemur í veg fyrir að harmleikur almenninganna eða, með leyfi forseta, „tragedy of the commons“ eigi sér stað en það er þegar erfitt reynist að útiloka notendur sameiginlegra auðlinda, oft með þeim afleiðingum að gengið er um of á þær. Til þess að þessar auðlindir haldist við og skapi gæði fyrir samfélagið í heild sinni er nauðsynlegt að fyrirtæki séu dregin til ábyrgðar og með þessu nýja fyrirkomulagi ber einn rekstraraðili ábyrgð á sér og sínu og er umbunað eða refsað út frá því.
Í 7. gr. laganna er svo fjallað um friðunarsvæði þar sem lagareldi er ekki leyft. Ég tel ástæðu til að fagna því, því að þó að burðarþolsmat setji að vissu leyti skorður við laxeldi á ákveðnum svæðum er það risastórt skref að tryggja það með lögum að ákveðin svæði sé friðlýst fyrir lagareldi. Burðarþolsmat hefur einnig verið útvíkkað þannig að það nær til alls álags sem verður af völdum fiskeldis, ekki bara líffræðilegs. Einnig hefur skilgreiningin á því hvað telst vera villtur stofn verið útvíkkuð þannig að hægt sé að styðja betur við stofna sem hætta steðjar að með fiskrækt, sem er í samræmi við fiskræktunaráætlun. Allt eru þetta mikilvæg skref sem tryggja sjálfbæran vöxt atvinnugreinarinnar.
Eins og hefur verið nefnt hefur eftirliti verið virkilega ábótavant þegar kemur að lagareldi en það er ljóst að eftirlitsstofnanir sinna gríðarlega mikilvægu hlutverki þegar kemur að því að fylgja viðurlögum frumvarpsins. Geta Matvælastofnunar til eftirlits verður stóraukin með innleiðingunni nái frumvarpið fram að ganga. Eins og staðan er í dag eru fjórir starfsmenn sem sinna eftirliti en gert er ráð fyrir að með auknum fjárveitingum muni þeim fjölga í 20 fyrir lok árs.
Forseti. Það er ljóst að áskoranirnar hvað lagareldi varðar eru verulegar, eins og ég hef stiklað á hér á undan, en það eru líka tækifæri. Sjálfbær matvælaframleiðsla er mikilvæg bæði á heims- og landsvísu og þar hefur lagareldi hlutfallslega sterka stöðu. Til samanburðar við aðrar framleiðsluaðferðir prótíns til manneldis er losun gróðurhúsalofttegunda og fóðurþörf hagstæð í fiskeldi og hlutfall fóðurþarfar hefur farið batnandi á síðustu árum. Sjálfbær matvælaframleiðsla er risastórt loftslagsmál og Ísland getur svo sannarlega markað sér sérstöðu í því samhengi.
Eins og hefur komið fram í þessari yfirferð minni er ýmislegt jákvætt við þetta frumvarp og það er löngu tímabært að setja heildstæð lög um þessa vaxandi atvinnugrein. Eins og kom fram í máli hæstv. matvælaráðherra eru í þessu frumvarpi boðaðar miklar breytingar frá núgildandi lögum. Það er hlutverk atvinnuveganefndar að ná utan um hin ólíku sjónarmið sem komið hafa fram hér og koma munu fram í umsögnum og leitast við að skapa sátt um frumvarpið og greinina. Sé vel að því staðið þá er ég viss um að lagareldi geti orðið ný stoð í íslenska hagkerfinu en það er sérstaklega mikilvægt að greinin þróist og vaxi með sjálfbærum hætti í takt við náttúruna.