lagareldi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og yfirferð á sínum sjónarmiðum gagnvart lagareldi. Mig langaði að spyrja hv. þingmann út í sjónarmið varðandi sjálfbærni vegna þess að hún fór yfir að lagareldi gæti verið leið til þess að efla sjálfbæra matvælaframleiðslu. Mér fannst vanta á rökstuðninginn fyrir því nákvæmlega hvaða leið það er og hvernig það stuðlar að sjálfbærri matvælaframleiðslu, bara svona í ljósi þess hversu mikið umhverfisrask fylgir þessari atvinnugrein. Og sér í lagi vegna þess að hv. þingmaður nefndi sérstaklega lagareldi, og þá er ég að tala um landeldið, sem atvinnugrein í vexti sem gæti verið kannski annar kostur eða betri kostur, þá vildi ég spyrja hv. þingmann út í hennar sjónarmið gagnvart þeirri gríðarlegu notkun á ferskvatni sem fylgir slíku eldi, hvort það sé sjálfbært til lengri tíma litið að nota fleiri hundruð tonn af ferskvatni, sem ég veit að okkur þykir stundum lítið mál en það er samt sem áður ekki óþrjótandi auðlind, til að rækta prótín í aðstæðum sem við getum heldur ekki beinlínis sagt að séu með dýravelferð í huga. Ég er bara að velta fyrir mér: Hver er sjálfbærnivinkillinn? Er hv. þingmaður tilbúinn að fara aðeins betur yfir það?