lagareldi.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég tek undir mikið af þeim sjónarmiðum sem hún ber hérna fram. Eins og ég nefndi í minni framsögu þá fylgir allri auðlindanýtingu að einhverju leyti kostnaður og það á vissulega við um sjókvíaeldi og lagareldi í heildina. En þingmaðurinn tók fram landeldi sem hefur að vissu leyti verið stillt upp sem sjálfbærari kosti. Ég tek að öllu leyti undir með þingmanni að því fylgir gríðarlegur kostnaður, bæði í formi orku og eins og þingmaðurinn nefnir í formi vatnsnotkunar, og það er í rauninni ekki komin nægilega góð reynsla á það til að halda fram einhverju um sjálfbærni greinarinnar í samanburði við sjókvíaeldi. En þegar við erum að tala um sjálfbæra matvælaframleiðslu þá erum við að tala kannski um prótíngjafa og í þeim samanburði, miðað við t.d. aðrar landbúnaðarvörur, þá er í rauninni hægt að halda því fram að lagareldi sé sjálfbærari kostur. En vissulega er umhverfiskostnaður til staðar þar eins og annars staðar.