lagareldi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Nú er ég bara að velta fyrir mér hvaða landbúnaðarframleiðslu hún er að bera þetta saman við. Eru það kjúklingabú eða svínabú eða kúabú? Eflaust má segja að þessi fylgi kannski minna sótspor heldur en við ræktun á nautgripum, mögulega, þó að ég viti ekki alveg í hverju sá samanburður felst. En ef við erum að tala um sjálfbæra matvælaframleiðslu og svo líka að ætla að hafa varúðarregluna að sjónarmiði við ákveðinn atvinnurekstur þá finnst mér eiginlega tómt mál að tala um lagareldi sem sjálfbæra matvælaframleiðslu sem virðir varúðarregluna. Er hægt að virða varúðarregluna þegar við vitum að slysasleppingar eru óhjákvæmilegar, þegar við vitum að það sem er dælt út í firðina okkar hefur varanleg áhrif á firðina til margra ára, áratuga og jafnvel lengur? Getum við sagt að við séum að virða varúðarregluna þegar við ákváðum að það sé bara einhver kostnaður? Varúðarreglan gengur ekki beinlínis út á kostnað. Hún gengur út á að láta náttúruna njóta vafans þegar það liggur ekki fyrir hvort óafturkræf eða veruleg umhverfisáhrif geti orðið af ákveðnum framkvæmdum eða atvinnugreinum. Það má alveg segja að við viljum prótín á diskinn okkar og við getum sagt að það sé einhver kostnaður sem fylgir því, en það er ekki beinlínis að hafa varúðarsjónarmið að leiðarljósi.
En það var svo sem ekki það sem ég ætlaði að koma að hérna í seinna andsvari og ég hef 20 sekúndur til að bera fram spurningu mína. Hún snýr að Árósasamningnum og hvernig við ætlum að standa vörð um réttindi almennings til að kæra leyfi og annað, til að hafa aðkomu að því hvernig farið er með umhverfi almennings. Ef við ætlum að gera leyfin ótímabundin, hver verður aðkoma almennings þá? Hvernig ætlum við að standa vörð um þessi réttindi í Árósasamningnum ef aðkoma almennings verður gerð að engu?