lagareldi.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Aftur vil ég segja að þetta eru mikilvæg sjónarmið sem að sjálfsögðu nefndin verður að skoða. Þá er ég að tala um Árósasamninginn og aðkomu almennings. Það verður vissulega rými til þess, umsagnaraðilar munu senda sínar umsagnir og þær verða teknar til greina. Ég er nýr meðlimur, nefndarmaður í atvinnuveganefnd og það er mjög mikilvægt einmitt að þessi sjónarmið nái fram að ganga og að tillit sé tekið til þeirra. Þannig að já, það er í rauninni eitthvað sem nefndin mun þurfa að skoða.