154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

lagareldi.

930. mál
[18:20]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Mig langar að leggja nokkur orð í belg við þessa 1. umræðu um frumvarp hæstv. matvælaráðherra um lagareldi. Mig langar að koma inn á nokkur atriði, ekki mörg, og hyggst ekki lengja þessa umræðu mjög mikið. Mig langar að byrja á því að minna hv. þingmenn á að fyrir rétt rúmu ári kom út skýrsla, stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi, lagaframkvæmd, stjórnsýslu og eftirlit. Vissulega fjallaði sú skýrsla einvörðungu um sjókvíaeldi en hún er engu að síður mjög mikilvægur grunnur fyrir það lagafrumvarp sem hér er til umræðu. Henni var lýst sem svartri og það er óhætt að taka undir það. Það voru gerðar miklar athugasemdir við lagaframkvæmd, stjórnsýslu og eftirlit með sjókvíaeldi hér á landi og rakið hvernig lagaumgjörðin alveg frá upphafi og mikill vöxtur í atvinnugreininni hafði farið fram án tilhlýðilegs eftirlits og án þess að gengið væri um auðlindirnar með þeim hætti sem okkur ber að gera.

Í maímánuði 2023 skilaði meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, átta fulltrúar af níu í þeirri nefnd, áliti um skýrslu Ríkisendurskoðunar og það liggur að sjálfsögðu fyrir í þingskjölum. Mig langar til að segja hér við 1. umræðu um þetta frumvarp að ég held að það væri mikilvægt fyrir fulltrúa í hv. atvinnuveganefnd að taka nú fram þetta álit og líka álit minni hlutans úr stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og hafa til hliðsjónar við starfið í atvinnuveganefnd um þetta nýja frumvarp hæstv. matvælaráðherra.

Það var auðvitað þannig að það þurfti að horfast í augu við það hvernig stjórnsýsla þessarar atvinnugreinar og eftirlit með henni höfðu reynst, eins og sagði í skýrslunni, með leyfi forseta, „veikburða og brotakennd og vart í stakk búin til að takast á við aukin umsvif greinarinnar á síðustu árum“. Þetta lá fyrir og það var í sjálfu sér ekki deilt um þetta í umfjöllun í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd um skýrslu Ríkisendurskoðunar en auðvitað var að einhverju leyti skoðanamunur á því hvernig nákvæmlega ætti að fylgja henni eftir eða hvað hún þýddi nákvæmlega fyrir lagaumgjörð atvinnugreinarinnar og eftirlit með henni. En ég endurtek það, forseti, að ég held að það væri ráð, svo þetta hangi allt saman hérna hjá okkur á hinu háa Alþingi, að fulltrúar í atvinnuveganefnd hefðu til hliðsjónar álit stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um skýrslu Ríkisendurskoðunar frá árinu 2023 um lagaframkvæmd og eftirlit með sjókvíaeldi hér á landi.

Ég hef getað fylgst með allflestum ræðum hér í dag og kannski hef ég misst af því en mér hefur þótt lítið fjallað um önnur verðmæti sem eru í húfi vegna sjókvíaeldis við Íslandsstrendur og það eru verðmætin sem við eigum í villtum laxastofnum í Norður-Atlantshafi. Við megum aldrei gleyma því að þó svo að sett sé á fót atvinnugrein sem hugsanlega getur starfað í sátt við náttúruna og samkvæmt þeim viðmiðum og gildum sem nefnd eru þegar starfsemi á að vera þannig að hún gangi ekki á auðlindir okkar þá þarf að huga að sjálfbærni. Það þarf að huga að líffræðilegri fjölbreytni. Það þarf að sjálfsögðu að huga að loftslagsmarkmiðum og eins og skrifað er inn í þetta frumvarp þá þarf að nýta vistkerfisnálgun á þessa auðlindanýtingu. En það hefur lítið verið rætt um nálgun á villtu laxastofnana sem eru án nokkurs vafa í mikilli hættu vegna sjókvíaeldis í opnum kvíum í fjörðum við Íslandsstrendur. Fram hjá því verður ekki litið og það má ekki gleymast, þó svo að hér sé verið að setja þennan lagaramma, að taka tillit til þeirrar áhættu. Allt verður að skoðast; burðarþolsmatið, áhættumatið og annað sem þarf að liggja fyrir vegna sjókvíaeldis, í þessu ljósi og að sjálfsögðu eru lokaðar sjókvíar eitthvað sem þarf að ræða í því samhengi. Hér hefur auðvitað einnig verið rætt um landeldi sem heyrir einnig undir frumvarp hæstv. ráðherra. Þar glímum við við aðrar áskoranir í umhverfismálum en í sjókvíaeldinu. En það er bara mjög mikilvægt að þingmenn hafi í huga að það steðjar mikil hætta að villtum laxastofnum í Norður-Atlantshafi og ýmsir hafa haldið því fram að við gætum í raun gengið af þeim dauðum með þeirri starfsemi sem fylgir sjókvíaeldinu.

Mig langar að nefna annað atriði. Í stefnu matvælaráðuneytisins um uppbyggingu og umgjörð lagareldis, sem kom út í október 2023, segir, með leyfi forseta:

„Svæði til sjókvíaeldis við Íslandsstrendur eru takmörkuð auðlind sem er á forræði íslenskra stjórnvalda. Með útgáfu rekstrar- og starfsleyfa eru leyfishöfum veitt takmörkuð og tímabundin réttindi til hagnýtingar á þessari sameiginlegu auðlind Íslands.“

Hér hefur í dag við 1. umræðu um þetta frumvarp margoft komið fram að helsta gagnrýnin á þetta frumvarp er um hin ótímabundnu leyfi. Það skýtur skökku við þegar maður les stefnumótun frá ráðuneyti hæstv. matvælaráðherra, sem er ekki gömul, hún er bara nokkurra mánaða gömul, síðan í haust, að við fáum svo í hendur þetta frumvarp sem virðist ekki taka tillit til stefnumörkunarinnar hvað þetta varðar. Við vitum og það liggur fyrir að ótímabundnum rekstrarleyfum um nýtingu náttúrulegra auðlinda, sameiginlegrar eignar þjóðarinnar, má jafna til óbeins eignarréttar. Það liggur fyrir og um það þarf ekki að deila. Þess vegna er það næstum óskiljanlegt að stjórnarflokkarnir og þeir hv. þingmenn sem þá styðja hér í þinginu skuli nú, u.þ.b. 40 árum eftir að við settum á kvótakerfi í sjávarútvegi og bjuggum til eignarhaldið sem reyndar tók einhver ár og jafnvel áratugi að mynda, leggja til sömu aðferð og það séu ekki tímabundin leyfi sem hér er um rætt, tímabundin leyfi sem er eðlileg ráðstöfun þegar um er að ræða sameiginlegar auðlindir þjóðar.

Ég verð að viðurkenna að ég hafði nú um einhvern tíma gert mér vonir til þess að það yrði þannig að frumvarpið sem kæmi úr ráðuneytinu væri hvað þetta atriði varðar bara í lagi, það tæki mið af þeim mikilvægu grundvallarhagsmunum almennings í landinu að náttúrulegar auðlindir eru sameiginleg eign okkar, samanber þessa auðlind. En svo er ekki. Hæstv. ráðherra, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, sagði hér í máli sínu við upphaf þessarar umræðu að það væri þá ágætt ef atvinnuveganefnd tæki það til rækilegrar skoðunar. En við vitum öll að það er tiltekinn meiri hluti sem endurspeglast einnig í fulltrúum í nefndinni og ég hef ekki orðið vör við það við þessa 1. umræðu hér í dag að sá meiri hluti sé að fara að breyta þessu ákvæði. En það þarf að vinna í því og mun heldur betur reyna á fulltrúa stjórnarandstöðunnar í þeirri vinnu á næstu vikum.

Síðasta atriðið sem mig langar að nefna hér í þessari stuttu ræðu er það sem ég les í frumvarpinu í 66. gr., um umhverfissjóð sjókvíaeldis. Þar stendur, með leyfi forseta:

„Umhverfissjóður sjókvíaeldis er sjálfstæður sjóður sem heyrir undir ráðherra. Ákvarðanir stjórnar eru endanlegar á stjórnsýslustigi. Markmið sjóðsins er að lágmarka umhverfisáhrif sjókvíaeldis og efla menntun á sviði sjókvíaeldis. Með sjóðnum skal greiða kostnað við rannsóknir vegna burðarþolsmats, vöktunar og annarra verkefna sem stjórn sjóðsins ákveður.“

Nú var það svo að við umfjöllun stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um skýrslu Ríkisendurskoðunar komu fram mjög alvarlegar athugasemdir við það, m.a. frá Hafrannsóknastofnun og einnig frá sveitarfélögum þar sem sjókvíaeldi er starfrækt, að það þyrfti að sækja í samkeppnissjóði vegna lögbundins eftirlits. Nú sé ég ekki hæstv. ráðherra hér í salnum en ég ætla að leggja það hér inn og færa til bókar við þessa umræðu að auðvitað verður hv. atvinnuveganefnd að skoða það til hlítar hvort það eigi virkilega að halda fram áfram með það fyrirkomulag að rannsóknastofnanir og/eða eftirlitsaðilar þurfi að sækja opinbert fé í samkeppnissjóði til að geta bæði stundað rannsóknir og/eða sinnt vöktun, gert burðarþolsmatið og annað slíkt. Ég neita eiginlega að trúa því að þetta sé fyrirkomulagið en ég get ekki skilið greinina með öðrum hætti. Ég velti fyrir mér, eftir allt sem á undan er gengið; stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar og þær umræður sem fram fóru hér á hinu háa Alþingi á síðasta þingi og líka bara almenna umræðu, kröfur fulltrúa sveitarstjórna, t.d. á Vestfjörðum, um að þetta sé í lagi og loforð hæstv. matvælaráðherra fyrrverandi um að kippa þessu í liðinn, hvort það geti virkilega verið að það loforð sé orðið að engu eða að ekki hafi verið hlustað á mjög svo vel rökstuddar ábendingar bæði opinberra rannsóknastofnana, eftirlitsaðila og sveitarfélaga um það að ekki þurfi að sækja í samkeppnissjóði fyrir lögbundin nauðsynleg verkefni.