154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

lagareldi.

930. mál
[18:32]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Ég vildi spyrja hana út í afstöðu hennar gagnvart þessari atvinnugrein og hvort það sé í raun hægt að hafa sjókvíaeldi í opnum kvíum við strendur landsins og virða á sama tíma varúðarregluna og rétt komandi kynslóða til að lifa við líffræðilegan fjölbreytileika. Við Píratar höfum lagt fram tillögu um að banna eldi í opnum sjókvíum vegna þess að það er a.m.k. okkar skoðun að það sé ekki hægt að stunda sjókvíaeldi í opnum kvíum án þess að óafturkræfur skaði verði á náttúru landsins. Það hefur nú þegar orðið nokkur skaði, mikil erfðablöndun. Hv. þingmaður kom inn á mikilvægi þess að halda í laxastofninn og við Píratar höfum gert það í ræðum okkar í dag einnig. Við sjáum það líka á reynslu annarra landa í kringum okkur þar sem opnar sjókvíar má finna víða að þar hafa laxastofnar hrunið, gjörsamlega hrunið. Það er hvergi jákvæð reynsla af því fyrir villta laxastofna að vera í návígi við sjókvíaeldi, hvergi, heldur er þróunin alls staðar sú að villtu laxastofnarnir hrynja. Og það er ekki bara það að stofnarnir hrynji, það að stofnarnir hrynja hefur líka keðjuverkandi áhrif um allt kerfið. Svo ég endurtaki spurninguna í lok þessarar stuttu ræðu minnar: Telur hv. þingmaður að það sé hægt að stunda sjókvíaeldi í opnum sjókvíum og virða á sama tíma varúðarregluna og líffræðilegan fjölbreytileika?