lagareldi.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég skal viðurkenna það að ég er ekki viss. Ég held að það sé mjög margt sem bendi til þess að það sé ekki hægt. Ég hef hingað til ekki viljað kveða svo fast að orði eða styðja tillögu um að banna sjókvíaeldi í opnum kvíum en ég skil vel og ég hef séð í umfjölluninni og aflað mér þekkingar um það að við þurfum auðvitað að íhuga það mjög rækilega. Vandinn er í þessari stöðu að hér var farin hin séríslenska leið, kapp án forsjár, atvinnugrein hleypt af stað og lagaramminn ekki nógu góður, lagaframkvæmdin ekki heldur og eftirfylgni öll, reglur og annað slíkt. Það lásum við auðvitað í lýsingu í skýrslu og stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar. Ég held að það gæti farið svo að við yrðum að þrengja þessar reglur. Ég hef sjálf spurt um það fyrir vestan og annars staðar hvers vegna menn noti ekki lokaðar kvíar og svarið hefur verið að það kosti of mikið. En kannski þurfum við að ræða það hér og við þurfum líklega að ræða það í fullri alvöru að það sé kostnaður sem borgi sig að leggja í vegna allra hinna samfélagslegu hagsmunanna og ekki síst til að virða varúðarregluna.