lagareldi.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég tel nefnilega nokkuð ljóst að það megi kosta að virða varúðarregluna, að náttúran sé meira virði heldur en kannski hugsanlega einhvers konar skaðabótaskylda út af reglugerðarrugli núverandi stjórnvalda. Ég held að réttur komandi kynslóða til að búa við líffræðilegan fjölbreytileika sé meira virði heldur en gróði nokkurra fyrirtækja. Ég tek það samt sem áður mjög skýrt fram að auðvitað er mjög mikilvægt að viðhalda blómlegri byggð um land allt og það þarf að koma til móts við þessar byggðir sem hafa verið sviknar æ ofan í æ af stjórnvöldum sem hafa ekkert hugmyndaflug þegar kemur að byggðastefnu og hafa ekki viljað styrkja tekjustofna sveitarfélaga t.d. til þess að viðhalda blómlegri byggð eða taka nógu framsækin skref nógu snemma til að styrkja nýsköpun og annað.
En svo ég vendi nú kvæði mínu í kross vegna þess að við verðum bara að vera sammála um að vera ósammála varðandi varúðarregluna, a.m.k. fyrsta kastið, þá vil ég spyrja hv. þingmann um lög um dýravelferð. Er hægt að vera með lagareldi, bara eins og það leggur sig myndi ég segja, og virða á sama tíma lög um dýravelferð? Tökum dæmi um laxalús sem veldur eldislaxi miklum skaða og étur hann lifandi í bókstaflegri merkingu. Allir laxar eru hjartasjúklingar vegna þess að þeir vaxa miklu hraðar en þeim er eðlislægt að gera, hjartað í mörgum þeirra springur. Til þess að hreinsa laxalúsina af þeim þurfa þeir að fara í gegnum eitrunarmeðferð og vera skolaðir með 30° C heitu vatni sem veldur gríðarlegum afföllum í þessari framleiðslu. (Forseti hringir.) Allt vekur þetta verulegar spurningar um hvort lagareldi yfir höfuð standist lög um dýravelferð.