lagareldi.
Forseti. Að sjálfsögðu má varúðarreglan kosta, að sjálfsögðu. Það þarf auðvitað að ræða það hér hvernig við beitum henni og henni er svo sem beitt í umhverfisrétti með ýmsum hætti. En hér liggur auðvitað undir, eins og hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir bendir á, réttur komandi kynslóða til líffræðilegrar fjölbreytni. Hann er væntanlega brotinn á hverjum einasta degi með alls kyns starfsemi um allan heim. Myndi virðing við varúðarregluna kippa því í liðinn? Ég er ekki viss, það myndi bæta stöðuna alveg örugglega. Og svo ég segi það aftur þá er það að sjálfsögðu þannig að það að virða varúðarregluna á ekki að vera eitthvað sem er gjaldfrjálst eða þarf ekki að vera þannig og þess vegna þarf að skoða það mjög alvarlega að loka kvíunum. En ég held hins vegar að grunnvandinn hér sé sá sem hv. þingmaður var einmitt að benda á, að það er farið í atvinnuuppbyggingu, að einhverju leyti einhvers konar byggðastefnu, sem er algerlega vanhugsuð frá upphafi. Svo er henni leyft að vaxa og það er alls konar gert og alltaf þegar á að grípa inn í þá er það eiginlega of seint af því að það er svo erfitt, það er svo erfitt að stöðva einhverja starfsemi sem hafin er, ég tala nú ekki um þegar hún hefur staðið árum saman. Það sem við þurfum auðvitað sem löggjafi að reyna að koma okkur saman um er hvers konar atvinnugreinar við viljum byggja upp. Ábendingar hv. þingmanns voru auðvitað allar réttar. Við höfum ekki verið að setja fjármagn í það að byggja upp atvinnugreinar sem ganga ekki eins á sameiginlegar náttúrulegar auðlindir okkar og þau verðmæti sem í þeim búa.