154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

lagareldi.

930. mál
[18:41]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur fyrir mjög góða ræðu og yfirgripsmikla enda fyrrum hæstv. umhverfisráðherra betri inni í málum heldur en við mörg hér. En hér hefur komið margt fram í dag í ræðunum og það er óneitanlega skrýtið að ætla að taka svo umdeilda búgrein og gefa frítt spil til eilífðarnóns, þeim sem þar vilja hefja atvinnustarfsemi, og hafa engin tímamörk. Auðvitað kann eitt og annað til að koma varðandi atvinnugreinina sem ekki hefur fram komið nú þegar. Og satt að segja að það sem hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fór yfir hér áðan svipti mig allri lyst á eldisfiski, alla vega tímabundið. Þetta eru óhuggulegar lýsingar, springandi hjörtu og bráðalús sem étur dýrin upp. Við erum auðvitað bara hér í augnablik, við í þessum þingsal, á þessu kjörtímabili og þó þau yrðu nokkur og við berum ábyrgð gagnvart framtíðarkynslóðum, að vera ekki búin að skjóta okkur í báða fætur í efnum sem þessum eða neinu öðru. Auðvitað snýst þetta um peninga. „Follow the money trail“, segir kaninn. Snýst þetta ekki bara um það að hér eru ýtrustu kröfur um það að allt sé frítt eins lengi og menn vilja? Jú, jú, með einhverjum málamyndagjöldum. Þurfum við ekki að setjast niður og ræða það: Hvað þurfa þessi fyrirtæki að lágmarki langan tíma til að geta réttlætt sínar fjárfestingu og hvað er sanngjarnt og heiðarlegt gagnvart fólkinu í landinu og komandi kynslóðum að veita langan tíma í þessa starfsemi meðan við vitum þó ekki meira um þessa tiltölulega nýju búgrein á Íslandi?