lagareldi.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er auðvitað þannig að í því frumvarpi sem hér liggur fyrir og við erum að ræða þá hefur ríkisstjórnin, og þeir þingmenn sem hana styðja, ákveðið að þetta geti haldið áfram til eilífðarnóns af því að leyfin eiga að vera ótímabundin. Það er það sem liggur á borðinu og það er það sem við þurfum að bregðast við og fjalla um og vonandi breyta. Það er verkefni okkar hér á hinu háa Alþingi og í atvinnuveganefndinni. Mig langar til að minna á þá staðreynd sem okkur er auðvitað öllum kunn að í stjórnarskrá lýðveldisins Íslands er atvinnufrelsi verndað en umhverfið er það ekki og ekki heldur kveðið á um sameiginlegt eignarhald þjóðarinnar á náttúrulegum auðlindum hennar. Þar liggur þetta ójafnvægi sem við erum alltaf að finna okkur í í vegna atvinnugreinanna og í þessu tilviki erum við kannski aðallega þá að vísa í sjókvíaeldið vegna þess að stjórnarskráin ver atvinnufrelsið en hún ver ekki náttúruna, ver ekki umhverfið. Enn stöndum við hér og höfum ekki haft burði sem löggjafi til að klára tillögur um slíkt. Það eitt og sér er náttúrlega bæði mikið áhyggjuefni og dapurlegur vitnisburður um þrek Alþingis Íslendinga.
Mér láðist áðan að svara hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur vegna dýravelferðarinnar og það er vissulega mjög truflandi þáttur í þessari starfsemi. Við höfum hingað til með þetta eins og annað fylgt ráðgjöf dýralækna og þeirra sem eiga að þekkja best til. En ég skal viðurkenna að það hvernig laxalúsin étur laxfiskana lifandi er í einu orði sagt viðbjóðslegt.