154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

lagareldi.

930. mál
[18:49]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég get tekið undir með hv. þm. Jakobi Frímanni Magnússyni um að við þurfum e.t.v. ekki fleiri stór deiluefni inn í samfélagið. En hvers vegna verða þau til? Þar getum við lesið í Íslandssöguna og séð hvernig deiluefnin verða til. Við sáum hvernig það varð til þegar sjávarútvegurinn var kvótasettur. Eitt var að setja kvóta á veiðina til að hún yrði sjálfbær og við myndum ekki að eyða stofnunum. Hitt var hins vegar hvernig við fórum með eignarhaldið á þeim kvóta. Nú erum við öllum þessum árum og áratugum síðar að leggja til að það séu ótímabundin leyfi sem er bara ótímabundinn kvóti sem verður að gífurlegum verðmætum þegar hann fer að ganga kaupum og sölum með einhverjum hætti, hvernig sem það verður. En af hverju gerist þetta? Það er vegna þess að gæslumenn sérhagsmunanna hafa því miður haft betur um þessi atriði. Hvað hafa sérhagsmunirnir? Þeir hafa náttúrlega fjárráð til þess að fara í sínar upplýsingaherferðir eða stunda sinn áróður, þeir hafa fjárráð til að hafa ítök mjög víða í samfélaginu. Það verður bara að segjast eins og er að ákveðin stjórnmálaöfl hafa gengið erinda þessara sérhagsmunaafla áratugum saman og miðað við efni þessa frumvarps þá eru þau ekki hætt því.