154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

lagareldi.

930. mál
[18:51]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Þegar við erum að gefa út leyfi til þess að nýta auðlindirnar okkar þá erum við alltaf að bregðast við. Við erum alltaf aðeins á eftir. Það hvernig farið hefur verið með fiskeldi hér á landi sýnir okkur, og það blasir líka við núna þegar vindmyllur og nýting raforkuframleiðslu þeirra er í umræðunni, að þar er ekki til neitt almennilegt regluverk. Við erum alltaf aðeins á eftir. Það sem þarf að gera, forseti, er að semja auðlindastefnu fyrir Ísland þar sem við höfum ákveðna leið fyrir auðlindanýtinguna og séum ekki alltaf að kokka upp einhver ný viðbrögð og verðum alltaf eftir á. Svo gerast mistökin og hverjir eru þá látnir borga fyrir kostnaðinn sem mistökin valda? Það er almenningur, það eru aldrei hluthafar fyrirtækjanna sem hafa nýtt auðlindina.

Við í Samfylkingunni höfum rætt þessi mál og kallað eftir auðlindastefnu og ákveðnum aðferðum í þeim efnum í mörg ár. Í stefnu Samfylkingarinnar, undir yfirskriftinni Auðlindir í þjóðareign, segir, með leyfi forseta:

„Samfylkingin vill að nýtingarréttur á náttúruauðlindum í þjóðareign sé tímabundinn og úthlutað gegn fullu gjaldi. Markmiðið er að tryggja almenningi réttmæta hlutdeild í þeim umframarði sem aðeins er tilkominn vegna auðlindarentu af eigum þjóðarinnar og koma um leið í veg fyrir að einstakir aðilar hagnist óeðlilega á því að taka megnið af auðlindarentunni til sín. Auðlindagjöld eru ekki skattar heldur afnotagjald sem er innheimt eins og hver önnur leiga.

Fullt gjald fyrir nýtingu náttúruauðlinda má fá á sanngjarnan og gagnsæjan hátt með útboði nýtingarleyfa til takmarkaðs tíma í senn. Til að gjaldtakan raski ekki rekstrargrundvelli fyrirtækja sem þegar hagnýta þær náttúruauðlindir sem um ræðir verður innleiðing á slíku útboði að eiga sér stað á hæfilega löngu tímabili og taka tillit til samfélagslegra þátta.“

Forseti. Þegar við erum að fara yfir á nýjar lendur eigum við auðvitað ekki að falla í sömu gryfju og við höfum gert áður. Ég vil vitna hér í frétt sem var í Stundinni, sem þá var, í október 2022 sem segir frá því að norsk stjórnvöld hafi selt ný framleiðsluleyfi fyrir eldislax fyrir 3,8 milljarða norskra króna eða 53,5 milljarða íslenskra króna. Um var að ræða 25.400 tonn af nýjum leyfum til að framleiða eldislax í fjörðum Noregs. Leyfin sem seld voru á þessu uppboði í Noregi nema tæplega helmingnum af þeirri 53.000 tonna heildarframleiðslu á eldislaxi sem var á Íslandi á árinu 2021. Munurinn á Íslandi og Noregi er hins vegar sá að á Íslandi eru framleiðsluleyfin ekki seld til laxeldisfyrirtækjanna. Samt er um að ræða sömu fyrirtækin í sumum tilfellum sem stunda laxeldi í Noregi og á Íslandi, m.a. SalMar ASA og Norway Royal Salmon. Ef þau 53.000 tonn af eldislaxi sem voru framleidd á Íslandi á árinu 2021 hefðu verið seld á uppboði með sams konar hætti og í Noregi þá hefðu íslensk stjórnvöld fengið rúmlega 111 milljarða kr. fyrir þessi framleiðsluleyfi. 111 milljarða kr., forseti.

Þáverandi hæstv. matvælaráðherra ræddi 13. október 2022 minnisblað um nákvæmlega þessi útboð í Noregi og allar þessar upplýsingar, en samt sem áður var ekki ákveðið að útfæra þessa hugmynd, að Íslendingar tækju upp uppboðskerfi á framleiðsluleyfum í laxeldi líkt og í Noregi. Allar þessar upplýsingar lágu fyrir þegar rætt var um að það þyrfti að marka stefnu í þessum efnum.

Í byrjun október 2022 sagði þáverandi matvælaráðherra í viðtali við Stundina að vegna þess hversu laxeldi hefði vaxið hratt á Íslandi væri mikilvægt að huga að regluverkinu. Orðrétt sagði hún, með leyfi forseta:

„Af þeim sökum er afar mikilvægt að reglusetning og stefna stjórnvalda í málefnum tengdum fiskeldi séu með þeim hætti að greinin byggist upp á forsendum sjálfbærni enda sé það til þess fallið að skapa mest verðmæti fyrir land og þjóð og uppfylla þau skilyrði að greinin geti starfað í sátt við samfélagið.“

Ráðherrann boðaði mikla stefnumörkun í málaflokknum og afraksturinn liggur nú fyrir og við ræðum hann hér í dag. Það er, forseti, ómögulegt að sjá á þessu frumvarpi að sjálfbærnihliðarnar allar hafi verið teknar til greina við samningu frumvarpsins, hvorki efnahagsleg, samfélagsleg né umhverfisleg hlið. Í áðurnefndri grein í Stundinni frá því í október 2022 er gjaldtaka hér á landi og í Noregi borin saman. Í yfirliti endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte um fiskeldi á Íslandi, sem kynnt var á árlegum sjávarútvegsdegi í október 2022, var m.a. fjallað um þau opinberu gjöld sem fiskeldisiðnaðurinn greiðir. Þar kom fram að árið 2021 hefðu þessi gjöld numið 788 millj. kr. í heildina. Þar af var auðlindagjald upp á 151 millj. kr. Þetta sýnir m.a. muninn á gjaldtöku í sjókvíaeldi á Íslandi og í Noregi. Framleiðsluleyfin eru seld dýrum dómum í Noregi og þar er einnig innheimtur aukaauðlindaskattur á ári hverju. Ef horft er til þess hversu mikið framleiðsluleyfi fyrir hámarks leyfilegan lífmassa samkvæmt leyfum allra laxeldisfyrirtækja í sjókvíaeldi á Íslandi myndu kosta í Noregi þá fer sú tala vel yfir 200 milljarða íslenskra króna.

Af þessu, forseti, hljóta þeir sem á hlýða að klóra sér í kollinum og hugsa: Hvers vegna fórum við ekki sömu leið og Norðmenn? Hvers vegna lærðum við ekki bæði af þeirra sigrum og mistökum? Mér er það algerlega óskiljanlegt hvers vegna sömu stjórnmálaflokkar vilja rétta auðmönnum auðlindirnar okkar, sama hvort þeir eru erlendir eða innlendir. Það er sannarlega mikilvægt að byggja upp góð störf úti um landið og huga að byggðasjónarmiði í atvinnumálum en því fylgir ekki að nauðsynlegt sé að gefa auðlindirnar frá okkur. En það höfum við gert endurtekið, forseti. Það gerðum við með fiskveiðistjórnarkerfinu og þar verðum við að stíga ákveðin skref til úrbóta með útboði á hæfilegu magni ár hvert svo veiðileyfin endurspegli fullt verð fyrir nýtingu fiskveiðiauðlindarinnar. En það erum við ekki að ræða hér. Við erum að ræða aðra auðlind. Við ræðum hér fiskeldi í sjó.

Hæstv. ríkisstjórn er með þessu frumvarpi að gefa auðlindir þjóðarinnar, afhenda fiskeldisfyrirtækjum firðina okkar varanlega með ótímabundnum rekstrarleyfum sem hafa hingað til þó verið tímabundin til 16 ára í senn með möguleika á framlengingu að þeim liðnum. Ríkisstjórnin ætlar núna að breyta lögunum þannig, og hv. stjórnarþingmenn væntanlega sem hafa afgreitt þetta frumvarp út úr þingflokkum sínum, að öll þessi rekstrarleyfi verði ótímabundin og þar á meðal leyfi sem þegar hafa verið veitt án endurgjalds. Hv. atvinnuveganefnd verður að svara því hver rökin eru fyrir þessum breytingum. Af hverju mega þessi leyfi ekki vera tímabundin eins og flest önnur nýtingarleyfi á náttúruauðlindum? Á það hefur verið bent að meira að segja í orkuvinnslu, þar sem fjárfestingar eru sannarlega bundnar til langs tíma og borga sig til baka yfir margra áratuga tímabil, fá orkufyrirtækin ekki ótímabundin leyfi. Þau eru öll tímabundin.

Gildandi löggjöf er óskýr eins og fram hefur komið og m.a. í skýrslu ríkisendurskoðanda sem hefur verið vitnað í hér í dag. Við ættum að nýta tækifærið, þegar hér stendur yfir heildarendurskoðun á lögum um fiskeldi, til að skýra réttarstöðu rekstrarleyfishafa og taka af öll tvímæli um að rekstrarleyfin séu tímabundin, taka af öll tvímæli um möguleika stjórnvalda til að afturkalla leyfin ef leyfishafar fara ekki að lögum og gera það mögulegt fyrir stjórnvöld að endurskoða forsendur fyrir leyfisveitingu.

Forseti. Gunnlaugur Stefánsson, fyrrverandi alþingismaður og núverandi formaður umhverfissamtakanna Laxinn lifi, sem er einnig í stjórn Landssambands veiðifélaga, gerir frumvarp það sem við ræðum hér að umtalsefni í grein á vefnum vísir.is í dag, með fyrirsögninni: Norskur skammtímagróði. Þar bendir hann á að háværar raddir hafi lengi varað við opnu sjókvíaeldi og þeim afleiðingum sem opið sjókvíaeldi hefur fyrir villta laxastofna og lífríki sjávar. Viðbrögðin hafi hins vegar verið þau að gagnrýnendur séu sakaðir um að vera á móti uppgangi í atvinnulífi á eldissvæðunum. Gunnlaugur segir, með leyfi forseta:

„Engu breytir þó hrunið í laxastofnum sé hafið og lífríkið stórskaðað. Afdrifaríkar slysasleppingar og niðurstöður rannsókna um vaxandi erfðablöndun í villtum laxastofnum staðreyna það. Eigi að síður ætlar brennt barn ekki að forðast eldinn, heldur berja haus við stein í von um að lafi á meðan ég lifi.“

Gunnlaugur segir að um þetta vitni frumvarpið sem við ræðum hér og nú. Boðaður sé stöðugur vöxtur á norskum og frjóum eldislaxi í opnum kvíum. Flestum takmörkunum sem nú gilda er rutt úr vegi, markmiðin um náttúruvernd horfin, leyfin verði útgefin án tímatakmarkana, heimild til veðsetningar og sölu leyfanna á markaðstorginu staðfest og takmörk á eignarhaldi útlendinga eins og gildi í íslenskum sjávarútvegi eigi ekki við í opna sjókvíaeldinu. Gunnlaugur skrifar, með leyfi forseta:

„Mikið hljóta norskir eldisrisar að fagna þessu framtaki íslenskra stjórnvalda. Um aldir þurftu Íslendingar að líða fyrir arðrán útlendinga í sjó, á landi og fólki. Nú skal staðfesta það með lögum og færa þeim á silfurfati. Svo segja útlensku risarnir að þeir séu að bjarga byggðunum á Vest- og Austfjörðum, auglýsa það óspart og krefjast þess að heimafólk dragi áróðursvagninn fyrir sig.“

Opið sjókvíaeldi hefur valdið skaða fyrir villta fiskstofna og lífríki, hvar sem það hefur verið stundað. Það staðreyna vísindin og allar rannsóknir. Engar mótvægisaðgerðir eru til sem geta bjargað því. Því er spáð að innan fárra ára muni opið sjókvíaeldi heyra sögunni til enda miða áætlanir eldisiðnaðarins við það, t.d. í Noregi þar sem áherslan núna er á uppbyggingu í úthafseldi. Þá má auðvitað spyrja, líkt og margir gera nú um stundir: Hvað verður um atvinnu- og efnahagslífið í eldisbyggðum á Íslandi þegar norskir eldisrisar pakka saman og láta sig hverfa? Það fylgir því ákveðin áhætta fyrir byggðirnar að ætla að treysta á opið sjókvíaeldi sér til farsældar um framtíð. Það vitum við. Þegar hv. atvinnuveganefnd var í fyrra í heimsókn í Færeyjum og Noregi til þess að kynna sér fiskeldi þar var mikið talað um þessa þróun, einmitt vegna þess að það þarf ekki bara að færa sjókvíaeldið til vegna þess að skíturinn undir fiskinum er mengandi heldur þarf að færa kvíarnar eins langt út og hægt er til að minnka skaðann eins og mögulegt er. Þetta er sú þróun sem er í gangi. (Forseti hringir.) En við erum hér, forseti, aftarlega á merinni í þessum efnum. Við eigum að líta til Noregs og læra af Norðmönnum.