154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

lagareldi.

930. mál
[19:18]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og tek undir með honum að ótímabundið leyfi er algjör ósvinna sem við munum ekki sætta okkur við. Þetta erum við hv. þingmaður sammála um. En mig langaði að ræða við hann um atriði sem ég er ekki sannfærð um að við séum sammála um og vildi því fiska eftir sjónarmiðum hans varðandi það. Það snýr að því að leyfa eldi í opnum sjókvíum yfir höfuð. Ég vil beina sömu spurningu og ég beindi til hv. þm. Þórunnar Sveinbjarnardóttur og heyra sjónarmið hv. þingmanns: Telur hv. þingmaður að hægt sé að reka sjókvíaeldi í opnum sjókvíum og á sama tíma að virða varúðarreglu umhverfisréttarins?