154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

lagareldi.

930. mál
[19:19]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Stutta svarið er: Ég held það sé skrambi erfitt en ég held við verðum að reyna að leita allra leiða til að tryggja að það verði hægt. Ég ætla alla vega ekki að standa hér og tala fyrir því að sjókvíaeldi verði bannað og sjókvíum lokað einn, tveir og þrír. Það kemur ekki til greina.