154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

lagareldi.

930. mál
[19:20]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég var ekki að spyrja hv. þingmann hvort hann vildi að sjókvíaeldi yrði bannað eða því lokað einn, tveir og þrír heldur einmitt hvort hægt sé að virða varúðarreglu umhverfisréttar og reka sjókvíaeldi í opnum sjókvíum. Ég held nefnilega að svarið við þeirri spurningu sé nei. Hvað felur varúðarreglan í sér? Hún felur í sér að náttúran eigi alltaf að njóta vafans þegar hætta er talin á eða ekki er vitað hvort ákveðnar framkvæmdir, atvinnugreinar o.s.frv. geti valdið verulegum, alvarlegum eða óafturkræfum umhverfisspjöllum. Lítum aðeins yfir sögu þessarar atvinnugreinar hér á landi. Við höfum nú þegar séð erfðamengun villta laxins. Við vitum að eiturefnum er dælt út í firði landsins. Við vitum af reynslu annarra þjóða í kringum okkur að alls staðar þar sem eldislax er nærri hrynur hinn náttúrulegi laxastofn í kringum hann. Það hefur veruleg áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika, ekki bara laxastofnsins sjálfs heldur margra annarra tegunda sem reiða sig á tilvist laxastofnsins. Að mínu viti er því ekki hægt að uppfylla varúðarregluna og reka eldi í opnum sjókvíum. Svo er bara spurning hvort maður sé tilbúinn að brjóta þá reglu til að vernda einhverja aðra hagsmuni, en sú regla er a.m.k. brotin.

En ef við tölum nú um aðrar reglur, virðulegi forseti, þá vil ég spyrja hv. þingmann í ljósi þess að laxalús étur laxinn lifandi og að lúsin er óhjákvæmilegur fylgikvilli þessarar atvinnugreinar, í ljósi þeirrar aðferðar sem er beitt við að hreinsa lúsina af laxinum og í ljósi þess að allir laxar eru hjartasjúklingar og hjörtu margra þeirra springa: Telur hv. þingmaður að hægt sé að virða lög um dýravelferð og reka lagareldi?